Skoðun

Fram­línu­fólkið hjá Icelandair

Andrea Rut Pálsdóttir skrifar

Við sem störfum í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair erum fjölbreyttur hópur. Við komum frá ólíkum löndum, tölum mörg tungumál og búum við mismunandi fjölskylduaðstæður. Mörg okkar búa á Suðurnesjum, en hluti okkar á höfuðborgarsvæðinu, eins og á við um mig sem núna þarf að búa mér nýtt heimili fjarri húsinu mínu í Grindavík.

En við eigum líka margt sameiginlegt. Öll höfum við valið að starfa í framlínu Icelandair og okkur þykir vænt um starfið okkar og farþegana sem við þjónum. Við deilum vinnuumhverfi og starfskjörum og núna í vikunni þurfum við, langflest í fyrsta sinn, að taka afstöðu til þess hvort við séum tilbúin til að leggja niður störf til að knýja á um kjarabætur og breytingu á okkar vinnuskipulagi.

Vinnutími með hléum

Kjör okkar eru ákvörðuð samkvæmt sérkjarasamningi VR og SA sem nær eingöngu til okkar starfa, en tekur breytingum samhliða aðalkjarasamningi. Við vinnum eftir lágmarkstöxtum og í áratugi hefur vinna þessa hóps verið skipulögð yfir vetrartímann með vinnudegi sem er ekki samfelldur. Um helmingur okkar vinnur fulla vinnu, ásamt yfirvinnu, á vöktum allan ársins hring. Hinn helmingurinn er færður í 76% starfshlutfall yfir vetrarmánuðina og er þá látinn vinna tvisvar sinnum fjórar klukkustundir, en með fjögurra klukkustunda hléi á milli. Fyrir flest af mínu samstarfsfólki býður þessi fjögurra tíma eyða ekki upp á neitt annað en aukinn kostnað við ferðir til og frá vinnu og tímasóun. Þetta er eini hópurinn á Keflavíkurflugvelli sem vinnur eftir þessu skipulagi. Og við viljum ná fram breytingum á þessu.

Við höfum lengi reynt að ná eyrum okkar stjórnenda Icelandair varðandi vinnufyrirkomulag og kjör. Viðbrögðin hafa ekki verið mikil og okkur finnst skorta á að stjórnendur sýni störfum okkar virðingu og séu tilbúnir að mæta sjálfsögðum óskum okkar um vinnuskipulag og kjör sem virka fyrir venjulegt fólk. Þess vegna höfum við óskað eftir liðsinni okkar stéttarfélags, VR, við að sækja okkar kröfur.

Við erum framlínan

Við vinnum í framlínu fyrirtækisins. Við tökum við áhyggjum fólks af sætaskipan, tengiflugi og týndum farangri. Við berum ábyrgð á að farþegar hafi gild ferðaskilríki og ef það fer forgörðum getur Icelandair þurft að greiða háar sektir.

Núna stendur yfir atkvæðagreiðsla um verkfall starfsfólks Icelandair í farþega- og hleðsluþjónustu í Keflavík. Þegar þetta er skrifað er kosningaþáttaka um 90% og henni lýkur á fimmtudag kl. 12 á hádegi. Samhliða sitjum við í Karphúsinu við samningaborðið og reynum að ná fram niðurstöðu. Það er von mín að þær samningaviðræður skili árangri og að ekki þurfi að koma til verkfalls. Ég og mitt samstarfsfólk viljum bætt kjör, vinnuskipulag sem virkar og virðingu fyrir störfum okkar. Ég vona að það nái fram að ganga.

Höfundur er trúnaðarmaður starfsfólks Icelandair í farþega- og hleðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×