Lífið

Semja sér­stakan for­seta­brag fyrir Katrínu

Jakob Bjarnar skrifar
Fjölmargir spá í öll spil sem til falla, hvort Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra láti slag standa og fari í forsetaframboð. Steinunn Ólína er ein þeirra og hún hefur nú samið sérstakan brag um það.
Fjölmargir spá í öll spil sem til falla, hvort Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra láti slag standa og fari í forsetaframboð. Steinunn Ólína er ein þeirra og hún hefur nú samið sérstakan brag um það. vísir/vilhelm

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og Einar Aðalsteinsson tónlistarmaður sömdu sérstakt lag um hugsanlegt og/eða væntanlegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í sínum fyrsta hlaðvarpsþætti.

Þátturinn heitir „Lífið er söngleikur“ sem gengur að verulegu leyti út á að þau tvö semja lag um það sem er í deiglunni hverju sinni. Og í fyrsta þætti tóku þau meðal annars fyrir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og hugsanlegt forsetaframboð hennar.

Steinunn taldi, eins og svo margir, einsýnt að Katrín hafi öðrum þræði verið að máta sig við forsetaframboðið þegar hún var gestur í síðasta þætti Gísla Marteins Baldurssonar í Vikunni. Og þau Einar spunnu það áfram með gamansömum hætti. Atriðið má heyra hér neðar en það ber að hafa í huga að Steinunn Ólína hefur verið afar gagnrýnin Katrínu að undanförnu og telur hana hafa sveigt flokk sinn af leið í ýmsum málefnum sem heyra til mannréttinda.

„Mér fyndist alveg eðlilegt í ljósi fylgistaps að Katrín sjái tækifæri og flóttaleiðin liggji til Bessastaða. Og ég varð bara að prófa að setja það í söngleikjalag því hvað á að gera þegar öll sund eru lokuð? Þá er eina leiðin að bresta í söng!“ segir Steinunn Ólína í samtali við Vísi.

Víst er að margir bíða þess hver ákvörðun Katrínar verður. Hún birti nýverið af sér mynd og eiginmanni sínum Gunnari Sigvaldasyni sem hefur gefið þeim hugmyndum byr undir báða vængi að Katrín ætli að söðla um og gefa kost á sér í komandi forsetakosningum, sem fram fara fyrsta laugardag í júnímánuði. Ef marka má þá sem setja merki við myndina til marks um að þeim líki hún vel þarf Katrín ekki að óttast það að fylgið sé ekki til staðar.

Sirrý Arnardóttir fyrirlesari, fyrrverandi fjölmiðlakona veit hvað klukkan slær. Hún er ein þeirra mörgu sem telja þetta ávísun á það sem koma skal: „Þegar þekkt stjórnmálakona, sem hefur verið prívat með sitt fjölskyldulíf, birtir fallega hjónamynd opinberlega þá hvarflar hugurinn að Bessastöðum og júní,” segir Sirrý og lætur broskall fylgja. Og segist ekki vera að taka afstöðu, aðeins það að hún hafi túlkað þetta sem vísbendingu.

Þátt þeirra Steinunnar Ólínu og Einars má finna hér.


Tengdar fréttir

Átján boða forsetaframboð

Meðal nýrra frambjóðenda er Kristján Jökull Aðalsteinsson einkaþjálfari sem hefur vakið athygli fyrir ógnandi skilaboð til Hildar Lilliendahl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×