Íslenski boltinn

„Kunnum að reikna á Hlíðar­enda og þetta er vel innan allra marka“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Börkur segir spennuna mikla á meðal Valsmanna vegna kaupanna á Gylfa.
Börkur segir spennuna mikla á meðal Valsmanna vegna kaupanna á Gylfa.

Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, fagnar komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins. Hann segir hafa verið snúið að ganga frá samningum en þó ekki að fjármagna samninginn sem sé innan velsæmismarka.

„Það er mikill gleðidagur á Hlíðarenda og ég held bara um allt samfélagið. Þetta hefur vakið verðskuldaða athygli,“ segir Börkur í samtali við Stöð 2.

„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir Val sem félag og viðurkenning  fyrir það sem við höfum verið að  gera hérna síðustu ár við að byggja þetta félag. Þetta er þvílík lyftistöng fyrir Bestu deildina í sumar og við erum að fá leikmann hingað í Val sem ungviðið okkar mun horfa á og læra af,“ bætir hann við.

Líkt og Vísir greindi frá í gær tók ársmiðasala hjá félaginu mikinn kipp eftir tíðindin.

„Ég heyrði í framkvæmdastjóranum áðan og mér skilst að við höfum á tíu mínútum selt fleiri ársmiða en við gerðum allt árið í fyrra. Ég veit ekki hvernig staðan er akkúrat í dag en stúkan tekur nú bara 1200 þannig að ég hvet fólk að vera fljótt að tryggja sér miða,“ segir Börkur.

Klippa: Börkur segir kostnað vegna Gylfa innan marka

Tók sinn tíma en kostnaður ekki út úr korti

Samningaviðræðurnar hafi tekið sinn tíma enda reyndu önnur íslensk lið við Gylfa.

„Þetta var snúið, enda stór leikmaður og stór ákvörðun fyrir hann að koma heim. Svo hafði hann úr mörgum kostum að velja hér heima, að sjálfsögðu. Svo við þurftum að hafa okkur alla við,“ segir Börkur sem vill lítið tjá sig um hversu kostnaðarsamt það sé að fá Gylfa til liðsins.

Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins voru launakröfur Gylfa tvær milljónir á mánuði.

„Það er alltaf einhver kostnaður en það sem við tökum út úr þessu er stærðin á leikmanninum og það sem hann mun gefa Val og gefa fótboltasamfélaginu. Það er svo miklu meira en stendur í samningnum,“

„Það var ekkert snúið, við kunnum að reikna á Hlíðarenda og þetta er vel innan allra marka,“ segir Börkur sem vill ekki heldur segja til um klásúlu varðandi tilboð í Gylfa að utan.

„Ég ætla svo sem ekkert að tjá mig um innihald samnings. En hann gerir tveggja ára samning við Val. Það er sá samningur sem gildir og vonandi heldur.“

En eru Valsmenn búnir að loka hópnum fyrir sumarið?

„Eðli málsins samkvæmt í fótboltaliði er aldrei búið að loka einu né neinu. Við erum alltaf að kíkja í kringum okkur á leikmannamarkaðinum, Svo er það eðli allra fótboltaþjálfara í heiminum held ég að það vanti alltaf einn til tvo leikmenn,“ segir Börkur.

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.

Valur hefur leik í Bestu deildinni sunnudaginn 7. apríl er ÍA heimsækir Hlíðarenda.

Fyrsta umferð Bestu deildar karla

  • Laugardagur 6. apríl

  • 19:15 Víkingur R. - Stjarnan


  • Sunnudagur 7. apríl
  • 13:00 Fram - Vestri
  • 16:15 KA - HK
  • 19:15 Valur - ÍA
  • 19:15 Fylkir - KR


  • Mánudagur 8. apríl
  • 19:15 Breiðablik - FH

Tengdar fréttir

„Það sem maður er spenntastur fyrir en á sama tíma óttast hvað mest“

Fé­lags­skipti Gylfa Þórs Sigurðs­sonar eru klár­lega stærstu fé­lags­skiptin í sögu ís­lenska boltans að mati Baldurs Sigurðs­sonar, sér­fræðings Stöðvar 2 Sport um Bestu deildina. Lyfti­stöng fyrir fé­lagið og ís­lenska boltann í heild sinni. Hvaða Gylfa Þór erum við að fara sjá inn á vellinum? Og hversu mikið fáum við að sjá til hans? 

Arnar segir Gylfa á allt öðrum stað: „Það þarf að beisla hann niður“

Eins og vel hefur verið fjallað um í dag er Gylfi Þór Sigurðsson orðinn leikmaður Vals. Eftir meiðslahrjáðar vikur er hann að komast á fullt aftur í boltanum. Arnar Grétarsson, þjálfari Vals segir Gylfa líta vel út. Það þurfi þó að beisla hann niður og um leið halda vel utan um hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×