Innlent

Grind­víkingar þrýsta á húsnæðismarkað

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Reykjanesbær. Mikil hækkun hefur verið á húsnæðisverði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins síðustu mánuði.
Reykjanesbær. Mikil hækkun hefur verið á húsnæðisverði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins síðustu mánuði. Egill Aðalsteinsson

Ný vísitala íbúðaverðs bendir til skarprar verðhækkunar á íbúðum í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Talið er að íbúðakaup Grindvíkinga séu helstu áhrifavaldurinn, og að áhrifin gætu orðið meiri á næstu mánuðum. 

Í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kemur fram að íbúðamarkaðurinn í nágrenni höfuðborgarsvæðisins hafi tekið kipp í febrúar með miklum verðhækkunum og mikilli fjölgun kaupsamninga. HMS telur að áhrifin megi rekja til íbúðakaupa Grindvíkinga.

HMS tilkynnti í gær að vísitala íbúðaverðs um land allt hafi hækkað um 1,9 prósent milli mánaða í febrúar og hafi hækkað um 5,7 prósent á síðustu tólf mánuðum. Verðhækkun á fjölbýlishúsum vó þar þungt, en undirvísitala fjölbýlishúsa á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,1 prósent milli mánaða en á landsbyggðinni hækkaði hún um 6,4 prósent.

Langmesta hækkunin er í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins, en þar hækkaði meðalverð á seldri íbúð úr 61,6 milljónum króna í janúar í tæpar 65 milljónir króna í febrúar. Einnig var gífurleg hækkun á sérbýlishúsum á svæðinu, en meðalkaupverð þeirra hefur hækkað úr 68 milljónum króna í nóvember 2023 í tæpar 80 milljónir króna í febrúar 2024.

Meðalkaupverð íbúða í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins síðastliðin sjö ár.Tekin af vef HMS.

Kaupsamningum fjölgar og veltan eykst

Fjöldi kaupsamninga sem gerðir voru í nágrenni höfuðborgarsvæðisins rúmlega tvöfaldaðist á milli mánaða í janúar og febrúar, en 74 kaupsamningar voru gerðir í janúar og 164 í febrúar. Þeim fjölgaði einnig á höfuðborgarsvæðinu en þar fóru þeir úr 332 í janúar í 491 í febrúar. Veltan á íbúðamarkaði jókst töluvert milli mánaða í febrúar, en hún hefur ekki aukist jafnmikið milli mánaða á svæðinu frá upphafi mælinga HMS í janúar 2014.


Tengdar fréttir

Ný vísitala íbúðaverðs hækkar

Ný vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,9 prósent á milli mánaða í febrúar og hefur hækkað um 5,7 prósent á síðustu tólf mánuðum. Með nýju vísitölunni má sjá verðþróun eftir landssvæðum og íbúðaflokkum, en gamla vísitalan sýndi einungis verðþróun á höfuðborgarsvæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×