Innlent

Ís­lensk ung­menni ó­hamingju­samari en eldri kyn­slóðir

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sérstök áhersla var á ungt fólk á hamingjumálþingi í dag.
Sérstök áhersla var á ungt fólk á hamingjumálþingi í dag. Vísir/Einar

Ísland vermir þriðja sætið á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims. Þetta sýnir ný alþjóðleg hamingjuskýrsla. Talsverður munur er á hamingju ungmenna og þeirra sem eldri eru en íslensku ungmennin eru þó hamingjusamari en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum sem jafnan eru þau lönd sem Íslendingar bera sig saman við.

Í dag er alþjóðlegi hamingjudagurinn en af því tilefni var blásið til málþings í Háskóla Íslands. Finnland er samkvæmt alþjóðlegri hamingjuskýrslu efst á blaði.

„Við erum í þriðja sæti á eftir Finnum og Dönum og höfum verið þar núna seinustu tvö ár, við höfum náð öðru sætinu en erum núna í þriðja en það er varla marktækur munur á Íslandi og Danmörku,“ segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sem er sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu og doktor í sálfræði.

Sérstök áhersla var lögð á stöðu ungmenna á málþinginu. En íslensk ungmenni verma fjórða sætið yfir þau hamingjusömustu en athygli vekur að ekkert Norðurlandanna er ofar en Ísland í þeim aldursflokki. Þó eru blikur á lofti því á Íslandi er mikill munur á milli kynslóða hvað hamingjuna varðar.

„Ef við skoðum aldurshópinn 18-24 ára, þá er um 40% þeirra sem telja sig hamingjusöm á meðan það er 70% hjá elsta hópnum. Þannig að það er mikill munur á aldurshópunum hérna á Íslandi.“

Dóra segir að félagsleg tengsl kunni að skýra þennan mun.

„Við höfum verið að mæla einmanaleika síðan 2016. Við héldum þá að það væri elsta fólkið sem væri mest einmana en það voru ungir karlmenn þegar við byrjuðum að skoða þetta en nú hafa ungar konur náð ungum körlum í einmanaleika sem er ekki gott þannig að við erum að sjá aukningu í einmanaleika og félagslegri útilokun meðal unga fólksins og þess vegna ákváðum við í málþinginu í ár að hafa sérstakan fókus á unga fólkið okkar.“

„Við erum að sjá að þar er minni hamingja heldur en í öðrum aldursflokkum, aukinn einmanaleiki, og við þurfum að skoða hvað það er sem við getum gert til að styðja þennan hóp og styðja félagslegu tengslin.“

Ekkert þeirra ungmenna sem fréttastofa ræddi við á Háskólatorgi kannaðist við þessa óhamingju. Hægt er að sjá og heyra viðtöl við nokkra háskólanema í fréttinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Bein út­sending: Hamingja og sjálf­bær vel­sæld

„Hamingja unga fólksins - hvernig undirbúum við þau sem best fyrir lífið?“ er yfirskrift málþings sem haldið er í tilefni af alþjóða hamingjudeginum í dag. Málþingið stendur milli klukkan 13 og 16 í dag og fer fram í hátíðarsal Háskóla Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×