Menning

Eliza hlaut heiðurs­verð­laun

Boði Logason skrifar
Eliza Reid forsetafrú hlaut sérstök heiðursverðlaun fyrir ómetanlegt framlag í þágu íslenskra bókmennta og ritlistar.
Eliza Reid forsetafrú hlaut sérstök heiðursverðlaun fyrir ómetanlegt framlag í þágu íslenskra bókmennta og ritlistar. Aðsend

Ís­lensku hljóð­bóka­verð­launin, Stor­ytel Awards, voru veitt við há­tíð­lega at­höfn í gær. Um er að ræða ár­legan við­burð þar sem hljóð­bóka­unn­endur; út­gef­endur, höfundar, lesara og þýðendur fagna saman út­gáfu vönduðustu hljóð­bóka síðasta árs.

Verðlaun voru veitt í fimm flokkum auk þess sem veitt voru sérstök heiðursverðlaun. Að undangenginni almenningskosningu í janúar fóru tilnefndar bækur fyrir sérstakar fagdómnefndir.

Mæðgurnar Álfrún Örnólfsdóttir og Helga E. Jónsdóttir lesarar hlutu verðlaun í flokknum besta skáldsagan fyrir lestur sinn á bókinni Minningaskrínið.Aðsend

Besta skáldsagan:

Minningarskrínið

Höfundur: Kathryn Hughes

Þýðing: Ingunn Snædal

Lestur: Katla Njálsdóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Helga E. Jónsdóttir

„Vinningshafi í flokki skáldsagna er Minningaskrínið eftir Kathryn Hughes í frábærri þýðingu Ingunnar Snædal. Sagan er mjög vel skrifuð, forvitnileg og er byggð á sönnum atburðum. Hún hverfist um þrjár sögumanns raddir og í þessari snjöllu hljóðbók fær hver rödd sinn sérstaka lesara sem bætir vel við gæði sögunnar og skilar sér í eftirminnilegri hlustun. Í Minningaskríninu eru möguleikar hljóðbókarinnar nýttir til fulls. Það er unun að hlusta á þær Kötlu, Álfrúnu og Helgu. Lestur þeirra er eðlilegur, áreynslulaus og flæðir vel.“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Arnmundur Ernst Backman lesari og Guðrún Brjánsdóttir höfundur hlutu verðlaun í flokknum besti ljúflesturinn fyrir bókina Óbragð.Aðsend

Besta ljúflestrarsagan

Óbragð

Höfundur: Guðrún Brjánsdóttir

Lestur: Arnmundur Ernst Backman

„Óbragð eftir Guðrúnu Brjánsdóttur er áhrifamikil en jafnframt bráðskemmtileg samtímasaga þar sem höfundur bregður á leik með kunnugleg stef á borð við covid, núvitund og örvæntingu þeirra sem verða skipreka í vellystingakapphlaupi samfélagsmiðla. Í bókinni kynnumst við Hjalta, ungum manni sem dregst inn í heim kakó-hugleiðsluklúbba eftir erfið sambandsslit. Frásögnin er glettin en jafnframt átakanleg þar sem hún dregur fram sálarflækjur þunglyndis og einangrunar. Persónurnar, sérstaklega hinn ráðvillti Hjalti, eru ljóslifandi í lestri Arnmundar Ernst Backman, sem fangar kvíða og tilvistarkreppu hins unga manns á hátt sem breytir góðri bók í eftirminnilega upplifun.“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Gunnar Helgason höfundur og lesari hlaut verðlaun fyrir bestu barnabókina, Hanni granni dansari.Aðsend

Besta barna- og ungmennabókin:

Hanni granni dansari

Höfundur: Gunnar Helgason

Lestur: Gunnar Helgason

„ Hanni granni dansari er einstaklega skemmtileg og lífleg hljóðbók þar sem öllu er tjaldað til. Mikil leik- og sönggleði einkennir texta og upplestur hljóðbókarinnar, en hljóðmyndin er lifandi þar sem meðal annars má heyra brot úr lögum með söngkonunum Selmu Björnsdóttur og Völu Guðnadóttur. Ekki skemmdi orkumikill lestur höfundarins Gunnars Helgasonar og dómnefndarmeðlimir skemmtu sér konunglega við hlustunina. Boðskapur sögunnar er einstaklega nútímalegur og áríðandi: það skiptir máli hvernig við hegðum okkur á samfélagsmiðlum, og eins og Stella kemst að í bókinni, hafa gjörðir okkar afleiðingar. Það er kafað á dýptina þar sem samband Stellu við bæði vini, fjölskyldu og mögulegan kærasta er í forgrunni. Semsagt, öll fjölskyldan getur skemmt sér við hlustun á hljóðbókinni Hanni granni dansari.“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta ósk­áldaða efnið

Réttarmorð

Höfundur: Sigursteinn Másson

Lestur: Sigursteinn Másson

„Fá sakamál á Íslandi hafa jafn goðsagnakennda stöðu í vitund þjóðarinnar og Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Í Réttarmorði er ljóst frá upphafi að sögumaðurinn og rannsakandinn Sigursteinn Másson hefur unnið mikið þrekvirki og hefur djúpan og persónulegan skilning á efninu. Réttarmorð er virkilega vel unnið verk, þar sem flókinni framvindu er miðlað á skýran og áhrifaríkan hátt. Það er ekki auðvelt að finna nýjan flöt á máli sem er líklega umfjallaðasta sakamál Íslandssögunnar en hér tekst það, ekki síst vegna þess að höfundurinn setur sjálfan sig inn í miðju framvindunnar, svo úr verður persónulegt og fróðlegt verk. Með þessari seríu tekst Sigursteini að færa þetta óupplýsta mál í nýtt og forvitnilegt samhengi. Frásögnin er aðgengileg og laus við að vera ruglingsleg. Það styður vel við framvinduna að flétta inn í frásögnina því sem var að gerast út í hinum stóra heimi á þessum tíma. Þetta er dýrmæt heimild fyrir sögu íslenskra sakamála. Hljóðvinnsla er til fyrirmyndar og bætir miklu við hlustunarupplifunina bæði með effektum og mjög vel völdum bútum úr lögum frá þessum tíma, þ.e.a.s. frá áttunda áratugnum. Lestur Sigursteins er skýr og ákveðinn og hentar efninu vel.“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Stefán Máni rithöfundur hlaut verðlaun fyrir bestu glæpasöguna, Hungur.Aðsend

Besta glæpasagan

Hungur

Höfundur: Stefán Máni

Lestur: Rúnar Freyr Gíslason

„ Hungur eftir Stefán Mána er hrollvekjandi glæpasaga þar sem tengsl milli dularfulls mannshvarfs og hrottalegs morðs um hábjartan dag koma af stað spennandi atburðarás sem afhjúpar skuggahliðar mannlegs eðlis. Brátt taka líkin að hrannast upp og ljóst er Hörður og félagar hans í lögreglunni eru að takast á við fjöldamorðingja, blóðugar aðfarir hvers bera glöggt merki um truflaðan og myrkan huga. Sem áður fer Rúnar Freyr Gíslason á kostum í flutningi sínum sem berdreymni einfarinn Hörður Grímsson og fær hlustendur til að vilja fara að sofa með ljósin kveikt.“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Eliza Reid fékk sérstök heiðursverðlaunAðsend

Heiðursverðlaun

Eliza Reid

Eliza Reid forsetafrú hlaut sérstök heiðursverðlaun fyrir ómetanlegt framlag í þágu íslenskra bókmennta og ritlistar. Elíza hefur talað fyrir mikilvægi íslenskra bókmennta og að þjóðin hafi aðgengi að þýddu erlendu efni sem víkki sjóndeildarhringinn. Hún hefur verið ötul að kynna íslenskar bókmenntir og koma íslenskum rithöfundum á framfæri erlendis á fjölbreyttum vettvangi og sem annar af stofnendum Iceland Writers Retreat Þá komst Eliza eins og ferskur vindur í hóp rithöfunda með sinni fyrstu bók Sprakkar. Þegar Sprakkar kom út sem hljóðbók árið 2022 fékk hún mikið lof frá hlustendum og hlaut tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2023.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×