Innlent

„Fram­sókn tryggt að páska­lambið renni ljúf­lega niður í ár“

Jakob Bjarnar skrifar
Báðum þeim Sigmari og Höllu Signý var mikið niðri fyrir á þinginu núna áðan en af sitthvorri ástæðunni. Halla Signý sagði til að mynda forstjóra Samkeppniseftirlitsins mæta nýjum búvörusamingi með myrkri og heimsósóma en Sigmar óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju.
Báðum þeim Sigmari og Höllu Signý var mikið niðri fyrir á þinginu núna áðan en af sitthvorri ástæðunni. Halla Signý sagði til að mynda forstjóra Samkeppniseftirlitsins mæta nýjum búvörusamingi með myrkri og heimsósóma en Sigmar óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju. vísir/vilhelm

Halla Signý Kristjánsdóttir fagnaði breytingum á búvörusamningum á þinginu áðan en það gerði Sigmar Guðmundsson Viðreisn ekki. Hann óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju með að hafa á örfáum dögum ríkisvætt tryggingafélag og tryggt einokun milliliða í landbúnaði.

Í störfum þingsins áðan töluðu nokkrir þingmenn um umdeildar breytingar á búvörusamingum. Ásmundur Friðriksson Sjálfstæðisflokki sagðist treysta bændum, sjálfbærni væri þeim í blóð borin. Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar gagnrýndi hins vegar að frumvarp matvælaráðherra væri ekki betur unnið, hún sagði margt geta farið úrskeiðis og það yrði síst bændum til hagsbóta.

Forstjóri Samkeppnisstofnunar mætir með myrkri

Halla Signý Kristjánsdóttir Framsókn var hins vegar á því að þetta væri besta mál og breytingarnar skiptu máli.

„Þessum breytingum er ætlað að styðja við endurskipulagningu og hagræðingu í slátrun og kjötvinnslu á þann veg að heimildir afurðastöðva í kjötiðnaði til að sameinast og gera með sér samkomulag um verðskrárskiptingu milli afurðastöðva í kjötvinnslu í því er varðar einstakar kjötafurðir og hafa með sér annarskonar samstarf. Þetta er liður í því að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu dreifingu kjötvara. Íslenskar landbúnaðarvörur eiga í samkeppni við innfluttar vörur.“

Halla Signý sagði nýju lögin fela í sér mikið hagræði fyrir íslenskar afurðastöðvar sem ekki eiga mikið í samkeppni við erlenda matvælaframleiðendur. Þá sagði hún:

„Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur brugðist við með stóryrðum og myrkri. Og boðar heimsósóma fyrir íslenska bændur og neytendur.“

Hún sagði framleiðendur nú með með lagalega stoð fyrir verðlagi og að ákveðið lágmarksverð ákveðið fyrir bændur.

„Bændur um allt land fagna þessari breytingu og forysta bænda hefur tekið undir þetta. Framsókn hefur ávallt verið óhrædd við að benda á þið augljósa. Og hefur lagt til þessar breytingar frá 2018. Loks náðum við meirihluta fyrir þessum mikilvægu breytingum en það er þó naumur meirihluti sem vill verja íslenska landbúnaðinn hér á Alþingi. Framsókn hefur tryggt að íslenska páskalambið rennur ljúflegar niður í ár.“

Sjálfstæðisflokkurinn tryggi einokun milliliða

Sigmar Guðmundsson Viðreisn var hins vegar standandi bit á því að kjötafurðir væru nú lögum samkvæmt undanþegnar samkeppnislögum. 

„Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur kallað þetta fordæmalausa aðgerð og stórslys. Og þetta hefur líka verið harðlega gagnrýnt af neytendasamtökunum. ASÍ hefur bent á að þetta geti unnið gegn nýgerðum kjarasamningum.“

Sigmar vitnaði þá til Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda sem hefur gagnrýnt þessa gjörð harðlega.

Sigmar sagði þá sem vilji stilla þessu upp sem svo að ASÍ, Neytendasamtökin og Samkeppniseftirlitið séu óvinir bænda hafi vondan málstað að verja:

„Það er ekki gagnlegt fyrir umræðuna að það megi ekki gagnrýna óskaplega miðstýrt landbúnaðarkerfi sem skilar bændum sjálfum knöppum kjörum án þess að það sé sett í annarlegt samhengi. Formaður Framsóknarflokksins fagnaði þessu mjög í gær, sami flokkur fer líka með samkeppnis- og neytendamál. En samkeppniseftirlitið og neytendasamtökin eru meðal hörðustu gagnrýnenda breytinganna,“ sagði Sigmar og sneri þá máli sínu til Sjálfstæðismanna sérstaklega:

„Sjálfstæðisflokknum vil ég svo óska til hamingju með vikuna, að ríkisvæða tryggingarfélag og tryggja einokun milliliða í landbúnaði. Þetta er ágætis verk á ekki lengri tíma.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×