Íslenski boltinn

„Var bara þrek­virki Óla Þórðar“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Reynir Leósson fagnar Ólafi Þórðarsyni í leikslok eftir að Skagamenn höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn út í Eyjum í lokaumferðinni 2001.
Reynir Leósson fagnar Ólafi Þórðarsyni í leikslok eftir að Skagamenn höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn út í Eyjum í lokaumferðinni 2001. S2 Sport

Baldur Sigurðsson heimsótti Skagamenn í nýjasta þættinum um Lengsta undirbúningstímabil í heimi en þátturinn var frumsýndur á Stöð 2 Sport í gær.

Baldur ræddi meðal annars við Jón Þór Hauksson, þjálfara Skagamanna, sem kom liðinu aftur í hóp þeirra bestu síðasta sumar. Skagamenn mæta því til leiks í Bestu deildinni í ár.

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA.S2 Sport

Skagamenn urðu síðast Íslandsmeistarar í fótbolta sumarið 2001 og Jón Þór þekkir vel til þess liðs því hann var þá í kringum liðið sem leikmaður.

„Íslandsmeistaraárið 2001 hjá ÍA er bara þrekvirki Óla Þórðar. Ég vil meina að hann eigi þann titil skuldlaust sem þjálfari. Það var alveg magnað,“ sagði Jón Þór Hauksson.

„Ég er inni í leikmannahópnum en það eru síðustu metrarnir mínir sem leikmanns þá bara 23 ára. Ég er inn í þeim leikmannahópi og það var auðvitað alveg magnað að fylgjast með Ólafi það ár,“ sagði Jón Þór.

„Ég held að ég geti sagt það að Skagaliðið það ár var langt frá því að vera best mannaða liðið eða besta fótboltaliðið það ár. Formið sem liðið var í, liðsheildin og samheldinn leikmannahópur sem Óli bjó til,“ sagði Jón Þór.

„Það hefur haft gríðarlega mikil áhrif á mig sem þjálfara,“ sagði Jón en hann nefndi fleiri áhrifamikla þjálfara á Skaganum.

„Sem ungur leikmaður þá er ferill Guðjóns Þórðarsonar svo byltingarkenndur. Þegar hann kemur hingað frá Akureyri og tekur við liðinu 1991. Þá er hann í raun og veru fyrsti þjálfarinn á Íslandi til að móta þetta undirbúningstímabil sem við þekkjum enn þann daginn í dag. Það þekktist ekkert þá að byrja í október eða nóvember,“ sagði Jón Þór.

Klippa: Jón Þór um þjálfarahetjur sínar á Skaganum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×