Skoðun

Varan­legt vopna­hlé og sjálf­stæð Palestína

Kristrún Frostadóttir skrifar

Undanfarna sex mánuði hefur heimurinn horft upp á hryllilega mannúðarkrísu stigmagnast á Gaza-ströndinni. Hungursneyð vofir yfir íbúum og nær ómögulegt er orðið fyrir alþjóðleg hjálparsamtök og heilbrigðisstarfsfólk að veita særðum og sjúkum aðstoð undir stöðugu sprengjuregni. Stjórnvöld í Ísrael hafa lýst því yfir að þau muni ekki heimila neyðaraðstoð frá Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í norðurhluta Gaza þar sem neyðin er einna mest.

Krafan er varanlegt vopnahlé

Það hefur tekið alþjóðasamfélagið óafsakanlega langan tíma að sameinast um skýr skilaboð um varanlegt vopnahlé á Gaza. Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í liðinni viku náðist þó langþráð samstaða um ákall um tafarlaust mannúðarhlé á Gaza – og í framhaldinu varanlegt vopnahlé, skilyrðislausa lausn gísla og afléttingu á öllum hömlum á mannúðaraðstoð. Þá komu ríki Evrópusambandsins sér jafnframt saman um refsiaðgerðir gegn ólöglegu landtökufólki á Vesturbakkanum auk þess sem Spánn, Írland, Slóvenía og Malta bættust í hóp þeirra tíu Evrópusambandsríkja sem lýst hafa yfir stuðningi við viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu.

Í gær fór svo fram söguleg atkvæðagreiðsla þegar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um tafarlaust vopnahlé sem vara á út föstumánuð múslima hið minnsta, skilyrðislausa lausn gísla ásamt afléttingu á öllum hindrunum á mannúðaraðstoð. Ályktunin var lögð fram af þeim tíu ríkjum sem ekki eiga fast sæti í Öryggisráðinu en ákvörðun Bandaríkjanna um að beita ekki neitunarvaldi heldur sitja hjá við afgreiðsluna markar tímamót í samskiptum Bandaríkjanna og Ísraels. Allt er þetta til marks um að loksins virðist þolinmæði alþjóðasamfélagsins gagnvart framgöngu ísraelskra stjórnvalda vera á þrotum. Í Ísrael hefur einnig fjarað undan stuðningi við þarlend stjórnvöld.

Tökum ákveðnari skref og tölum fyrir sjálfstæðri Palestínu

Viðbrögð ríkisstjórnar Íslands við mannúðarkrísunni fyrir botni Miðjarðarhafs hafa því miður verið gagnrýniverð fyrir margra hluta sakir. Þeirri gagnrýni höfum við í Samfylkingunni haldið á lofti á Alþingi og víðar á opinberum vettvangi. Í kjölfar gagnrýni á ríkisstjórnina, eftir hjásetu Íslands á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu um vopnahlé í október, sameinaðist Alþingi um þingsályktun sem skýrði afstöðu Íslands þar sem meðal annars var sett fram krafa um tafarlaust vopnahlé. Þá hefur utanríkisráðherra nú aflétt frystingu á kjarnaframlagi Íslands til UNRWA – en ákvörðun um frystingu framlaganna olli verulegum vonbrigðum fyrr á árinu. Loks hefur tekist að koma 72 dvalarleyfishöfum út af Gaza-svæðinu. Allt skiptir þetta máli.

Nú er hins vegar tímabært að Ísland taki ákveðnari skref til stuðnings palestínsku þjóðinni. Við getum verið stolt af því að hafa verið eitt af fyrstu ríkjum Evrópu til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu með þingsályktun haustið 2011. Og í desember sama ár staðfestu utanríkisráðherrar Íslands og Palestínu upptöku stjórnmálasambands milli ríkjanna með formlegum hætti. Íslensk stjórnvöld ættu nú að halda þessari afstöðu á lofti og tala hátt og ákveðið fyrir stofnun sjálfstæðs og fullvalda ríkis Palestínu. Varanlegur friður verður ekki tryggður öðruvísi en með tveggja ríkja lausn.

Ef Ísrael virðir að vettugi ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í gær ættu íslensk stjórnvöld einnig að eiga frumkvæði að viðræðum við önnur Norðurlandaríki um mögulegar efnahagslegar og pólitískar þvingunaraðgerðir gagnvart Ísrael. Hörmungum verður að linna – og Ísland verður að leggja sitt af mörkum til þess á alþjóðavettvangi.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×