Lífið

Þing­for­seti, borgar­full­trúi og Frikki Dór í fjöl­mennu útgáfuhófi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Einar Lövdahl Gunnlaugsson sló á létta strengi, las upp úr bókinni og tók tvö lög.
Einar Lövdahl Gunnlaugsson sló á létta strengi, las upp úr bókinni og tók tvö lög. Hilmar Mathiesen

Það var bæði fjölmennt og góðmennt í Bókabúð Forlagsins á dögunum þegar Einar Lövdahl Gunnlaugsson hélt útgáfuhóf í tilefni af útgáfu bókar sinnar Gegnumtrekkur.

Kátt var á hjalla og las höfundurinn upp úr bókinni. Þá flutti hann sömuleiðis tvö lög. Kápuna á bókinni hannaði Þorleifur Gunnar Gíslason. Einar segist telja margt vera í bók sinni sem fólk af ungu kynslóðinni tengi við. 

Gegnumtrekkur er hnyttin og heiðarleg skáldsaga um stritið við að standa í lappirnar í vindasamri tilverunni og í samskiptum við sína nánustu. Bókin segir frá Aski, nýfullorðnum manni sem er hálfhræddur við lífið og stingur af út á land – þegar hann á að vera að sækja mömmu sína út á flugvöll. Hann er kominn með nóg af óþægilegum samskiptum.

Á flakki hans sem puttalingur fer lesandinn að kynnast sögu hans betur og hvers vegna hann á svona erfitt með samskipti, til dæmis við kærustuna, besta vininn (sem er peppfyrirlesari og samfélagsmiðlastjarna) og mömmu sína, sem hann hefur verið í reglulegum símasamskiptum við en þó ekki hitt síðan hann var unglingur.

Einari er margt til lista lagt. Hilmar Mathiesen

Friðrik Dór Jónsson og Lísa Hafliðadóttir.Hilmar Mathiesen

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir í góðum félagsskap.Hilmar Mathiesen

Sigurður Helgi Birgisson, Agnar Þórður Úlfsson og Einar Friðriksson.Hilmar Mathiesen

Birgir Ármansson í góðum gír.Hilmar Mathiesen

Björn Orri Ásbjörnsson ásamt syni sínum.Hilmar Mathiesen

Jón Heiðar Gunnarsson, markaðsstjóri Forlagsins og Æsa Guðrún Bjarnadóttir, ritstjóri hjá Forlaginu.Hilmar Mathiesen

Guðný Gabríela Aradóttir og Auður Skarphéðinsdóttir.Hilmar Mathiesen

Bogi Þór Siguroddsson, Gunnlaugur Sigfússon, faðir rithöfundarins og Arnór Þórir Sigfússon.Hilmar Mathiesen

Árni Grétar Finnsson í fókus.Hilmar Mathiesen

Steinar Örn Jónsson, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, Halldór Eldjárn og Albert Guðmundsson.Hilmar Mathiesen.

Fjölmenni mætti til að gleðjast með Einari. Hilmar Mathiesen.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×