Íslenski boltinn

Skaga­menn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo ára­tugi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arnór Smárason og liðsfélagar hans í ÍA fagna því að sigra Lengjudeildina 2023.
Arnór Smárason og liðsfélagar hans í ÍA fagna því að sigra Lengjudeildina 2023. Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tekur á móti ÍA í kvöld í úrslitaleik Lengjubikars karla í knattspyrnu en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 en útsendingin á Stöð 2 Sport 5 byrjar klukkan 19.00. Blikar unnu Þór Akureyri í undanúrslitum en Skagamenn unnu Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Val í vítakeppni í hinum undanúrslitaleiknum.

Blikar þekkja það vel að vinna titla á síðustu árum en það er komið langt síðan Skagamenn unnu síðast titil.

ÍA-liðið hefur reyndar unnið B-deildina tvisvar á síðustu sex árum þar af í fyrrasumar en það telst nú ekki til stærri titlana sem eru Íslandsmeistaratitilinn, bikarmeistaratitilinn og deildarbikarmeistaratitilinn.

Það eru liðin rúm tuttugu ár síðan Skagamaður lyfti einum af þessum þremur bikurum en það gerði Gunnlaugur Jónsson eftir sigur Skagamanna í bikarúrslitaleiknum 2003. ÍA vann þá 1-0 sigur á FH á Laugardalsvellinum og Garðar Gunnlaugsson skoraði eina markið á 78. mínútu.

Skagamenn hafa unnið þessa þrjá titla alls þrjátíu sinnum (18 Íslandsmeistaratitlar + 9 bikarmeistaratitlar + 3 deildarbikarmeistaratitlar) en þetta er lengsta einstaka biðin eftir titli upp á Akranesi.

Það eru liðin tæp 21 ár síðan Skagamenn unnu síðast þennan bikar sem keppt er um í kvöld. ÍA vann deildarbikarmeistaratitilinn vorið 2003 eftir sigur á Keflavík í úrslitaleiknum.

ÍA og Keflavík gerðu 1-1 jafntefli en Skagamenn unnu 4-2 í vítakeppni. Þórður Þórðarson varði tvær vítaspyrnur Keflvíkinga í vítakeppninni og hafði einnig varið víti í leiknum sjálfum.

Gunnlaugur Jónsson tók þá líka við bikarnum í leikslok en sá úrslitaleikur fór fram á Valbjarnarvelli 9. maí 2003. Hann er ekki til lengur.

Síðan þá hafa Skagamenn ekki unnið titil en þeir endurheimtu sæti sitt í Bestu deildinni með sannfærandi sigri í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.

Blikar unnu síðast deildarbikarinn árið 2015, þá í annað skiptið í sögu félagsins. Breiðablik vann þá 1-0 sigur á KA í úrslitaleik og skoraði Ellert Hreinsson sigurmarkið. Arnór Sveinn Aðalsteinsson tók við bikarnum sem fyrirliði Blika. Arnór Sveinn er enn að spila með Blikum en er ekki fyrirliði liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×