Um­fjöllun: Breiða­blik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Blikar höfðu ástæðu til að fagna í kvöld.
Blikar höfðu ástæðu til að fagna í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik er Lengjubikarmeistari karla í fótbolta árið 2024 eftir þægilegan 4-1 sigur á ÍA í Kópavogi í kvöld.

Það var Kristófer Ingi Kristinsson sem kom Blikum yfir með snotru skallamarki sínu um miðbik seinni hálfleiks. Fyrirgjöf Arons Bjarnasonar rataði beint á kollinn á Kristófer Inga sem skallaði boltann af stakri prýði í netið.

Marko Vardic jafnaði metin fyrir Skagamenn skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks með stórglæsilegu marki. Vardic þrumaði boltanum rétt utan vítateigs Blika og knötturinn söng í samskeytunum. Óverjandi fyrir Anton Ara Einarsson, markvörð Breiðabliks.

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, endurheimti síðan forskot Kópavogsliðsins með marki sínu beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Skot Höskuldar var hnitmiðað og rataði í fjærhornið. Staðan 2-1 í hálfleik.

Höskuldur Gunnlaugsson dró fram skotskóna í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Jason Daði Sveinþórsson kom svo Blikum í 3-1 með fallegu marki sínu í upphafi seinni hálfleiks. Andri Rafn Yeoman átti þá flotta stungusendingu á Jason Daða sem tók boltann vel með sér og vippaði honum yfir Árna Marínó.

Fjórða mark Blika var af dýrari gerðinni. Kristinn Steindórsson vippaði þá boltanum innfyrir vörn Skagamanna á Höskuld sem skoraði með viðstöðulausu skoti á lofti.

Breiðablik tryggði sér þar með sigurinn í Lengjubikarnum í þriðja skipti í sögu félagsins en síðast vann liðið mótið árið 2015. Blikar komast þar af leiðandi upp að hlið Skagaliðsins á listanum yfir fjölda titla í þessu móti.

Jason Daði Svanþórsson var líflegur í leik kvöldsinsVísir/Hulda Margrét

Af hverju vann Breiðablik?

Blikar voru heilt yfir sterkari aðilinn í þessum leik og áttu fleiri góðar sóknarlotur. Þeir nýttu þrjár af þeim og skoruðu svo eitt mark úr föstu leikatriði.

Hverjir sköruðu fram úr?

Höskuldur var öflugur væði í varnar- og sóknarleik Blika auk þess að skora tvö ansi snotur mörk. Kristófer Ingi minnti á sig í baráttunni um framherjastöðuna við Benjamin Stokke með góðri frammistöðu. Kristinn Steindórsson, Aron Bjarnason og Jason Daði voru síðan síógnandi í sóknarleik Breiðabliks.

Árni Marínó verður ekki sakaður um tap Skagaliðsins en hann varði nokkrum sinnum vel. Marko Vardic átti fínan leik og Jón Gísli Eyland Gíslason var flottur í hægri bakvarðarstöðunni.

Hvað gekk illa?

Varnarleikur Skagamanna sem var vel útfærður á móti Val í undanúrslitum mótsins var ekki eins þéttur að þessu sinni og Blikar náðu að skora fjögur mörk í kvöld.

Hvað gerist næst?

Liðin spila næst í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Skagamenn sækja Val heim á Hlíðarenda sunnudaginn 7. apríl og Blikar fá FH í heimsókn á Kópavogsvöllinn mánudaginn 8. apríl.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira