Körfubolti

„Veit að Kobe væri stoltur af mér“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ekkert fékk Murray stöðvað.
Ekkert fékk Murray stöðvað. Kevin C. Cox/Getty Images

Dejounte Murray, leikmaður Atlanta Hawks, tók 44 skot í óvæntum sigri Hawks á Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Aðeins Russell Westbrook og Kobe Bryant hafa tekið fleiri skot í einum og sama leiknum á undanförnum 20 árum.

Fyrir leik Hawks og Celtics var í raun búist við öruggum sigri Boston þar sem liðið er á toppi Austurdeildar á meðan Hawks eru án Trae Young og ekki að keppa að neinu. Annað kom þó á daginn en leikurinn var gríðarlega jafn frá fyrstu mínútu og raunar svo jafn að það þurfti að framlengja.

Þar var það Murray sem tryggði sigurinn en hann skaut Boston einfaldlega í kaf, lokatölur 123-22. Alls tók hann 44 skot sem skiluðu honum 44 stigum. Þá gaf hann sjö fráköst og tók sjö stoðsendingar.

„Ég veit ekki hvað fékk mig til að taka þetta mörg skot en ég veit að Kobe væri stoltur af mér,“ sagði Murray eftir leik en Kobe Bryant heitinn lék allan sinn feril með Los Angeles Lakers, helsta óvin Boston Celtics.

Murray var langtum stigahæstur í liði Hawks en Bogdan Bogdanović var með 24 stig og De‘Andre Hunter skoraði 21 stig og tók 13 fráköst. Hjá Celtics var Jayson Tatum með 31 stig og 13 fráköst á meðan Derrick White skoraði 22 stig og Kristaps Porziņģis 20 stig.

Aðeins fóru tveir leikir fram í nótt en i hinum vann New Orleans Pelicans sjö stiga sigur á Milwaukee Bucks, 107-100. Zion Williamson skorðai 28 stig í liði Pelicans á meðan CJ McCollum setti niður 25 stig.

Hjá Bucks var Giannis Antetokounmpo með 35 stig og 14 fráköst á meðan Damian Lillard og Malik Beasley skoruðu 20 stig hvor.

Bucks hafa nú tapað tveimur leikjum í röð og fimm af síðustu tíu. Það hefur þó ekki mikil áhrif á stöðu liðsins en Bucks hefur svo gott sem tryggt sér heimavallarrétt í úrslitakeppninni. 

Stóra spurningin er hvaða liði það mætir í fyrstu umferð, sem stendur væri það Miami Heat. Pelicans er á sama tíma í harði baráttu um heimavallarrétt í Vesturdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×