Íslenski boltinn

Bjarni mættur í Val og segir komu Gylfa hafa skipt máli

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarni Mark Duffield er genginn í raðir Valsmanna.
Bjarni Mark Duffield er genginn í raðir Valsmanna. Valur

Bjarni Mark Duffield er mættur heim til Íslands úr atvinnumennsku í Noregi og mun spila á miðjunni með Valsmönnum í sumar, í Bestu deildinni í fótbolta.

Bjarni, sem er 28 ára gamall, skrifaði undir samning við silfurlið Vals sem gildir til næstu þriggja ára.

Hann hefur leikið með Start í Noregi síðustu fimm ár en bætist nú í öflugan leikmannahóp Valsmanna sem svo sannarlega gera tilkall til Íslandsmeistaratitils í ár, eftir að hafa einnig fengið til sín menn á borð við Gylfa Þór Sigurðsson og Jónatan Inga Jónsson. Koma Gylfa átti sinn þátt í þeirri ákvörðun Bjarna að semja við Val.

„Til dæmis það að fá Gylfa Sigurðsson til liðsins er risastórt og hjá mér var það alveg faktor í því að ég ákvað að koma í Val. Ég hef verið mikill aðdáandi Gylfa sem fótboltamanns og það að fá að upplifa það að æfa og spila með svona hæfileikaríkum leikmanni verður afar spennandi,“ segir Bjarni í tilkynningu sem Valur sendi frá sér í dag.

Mjög skýrt að þeir vildu mig í ákveðið hlutverk

Ljóst er að Bjarna, sem á að baki þrjá A-landsleiki fyrir Ísland, er ætlað mikilvægt hlutverk á miðjunni hjá Val.

„Þegar klúbbur með svona gott lið og þennan metnað sýnir áhuga þá lít ég á það sem ákveðna viðurkenningu fyrir mig. Það var mjög skýrt frá félaginu að þeir vildu fá mig í ákveðið hlutverk sem skiptir mig líka máli. Ég fann að þeir voru að horfa á mig sem persónu og karakter en ekki bara sem fótboltamann,“ segir Bjarni í tilkynningu Valsmanna. Þar lýsir hann sér sjálfum sem kraftmiklum leikmanni með mikinn metnað:

„Ég tel mig vara ákveðinn karakter og ég vil vinna auk þess sem ég er all around góður í fótbolta. Ég mun gera það sem mér er sagt en aðallega einbeita mér að því að dekka réttu svæðin.“

Horfir á leikinn í Víkinni í kvöld

Bjarni lék með Fjarðabyggð og KA áður en hann hélt til Noregs eftir að hafa spilað 22 leiki með KA í efstu deild sumarið 2018.

Hann er kominn til landsins og mun fylgjast með leik Vals við Víkinga í Fossvoginum í kvöld, í Meistarakeppni KSÍ.

„Það var ein ástæða þess að ég dreif mig strax heim því ég vil vera viðstaddur fyrsta leikinn. Tímabilið er einmitt að byrja í Noregi í dag og ég hef verið að æfa mjög vel og er í toppstandi. Ég get ekki beðið eftir því að mæta á mína fyrstu æfingu og verða hluti af þessu frábæra félagi.“

Arnar Grétarsson þjálfari Vals kveðst ánægður með komu Bjarna sem hann segir passa vel inn í það sem þjálfarateymi Vals sé að hugsa:

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur Valsmenn að fá Bjarna á Hlíðarenda, góður leikmaður sem gerir liðið og hópinn enn sterkari fyrir komandi átök. Áfram hærra,“ segir Arnar í tilkynningu Vals.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×