Enski boltinn

Missir úr svefn vegna sla­krar frammi­stöðu sinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hinn 32 ára gamli Casemiro hefur unnið fjölda titla á ferli sínum en hefur undanfarnar vikur og mánuði verið orðaður við lið í Sádi-Arabíu. 
Hinn 32 ára gamli Casemiro hefur unnið fjölda titla á ferli sínum en hefur undanfarnar vikur og mánuði verið orðaður við lið í Sádi-Arabíu.  AP Photo/Dave Thompson

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro hefur ekki átt sjö dagana sæla í liði Manchester United á yfirstandandi leiktíð enskrar knattspyrnu. Hefur hann verið svo slakur að hann hefur misst úr svefn vegna eigin frammistöðu.

Casemiro gekk í raðir Man United sumarið 2022 eftir að félagið hafði elt Frenkie de Jong, hollenskan miðjumann Barcelona, mánuðina þar á undan. Kaupin vöktu athygli þar sem Casemiro á lítið sameiginlegt með De Jong fyrir utan að spila með einu af tveimur stærstu liðum Spánar.

Voru sett spurningamerki við kaupin en Casemiro svaraði gagnrýnisröddum með góðri frammistöðu á sínu fyrsta tímabili á Englandi. Man United endaði í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, komst í úrslit ensku bikarkeppninnar og fór með sigur af hólmi í enska deildarbikarnum.

Á þessari leiktíð er hins vegar annað hljóð í strokknum. Casemiro hefur ekki verið sjón að sjá, verið skrefi á eftir andstæðingum sínum og almennt átt verulega erfitt uppdráttar.

Í viðtali við ESPN sagði Casemiro að hann væri farinn að missa úr svefn vegna slakrar frammistöðu sinnar.

„Þetta er erfitt. Það sem pirrar mig mest er að vera ekki að berjast um titla, að vera 20 stigum á eftir toppliðinu. Stundum get ég ekki sofið og því reyni ég að hugsa um eitthvað annað. Þetta er hins vegar raunveruleikinn, það er enginn tilgangur að tala um titilbaráttu eða Meistaradeild Evrópu. Við þurfum að taka þetta einn leik í einu.“

„Við þurfum að taka þetta dag fyrir dag. Við fengum nóg af færum til að skora níu mörk í undanförnum leikjum en skoruðum aðeins tvö. Við erum pirraðir. Við berðum að gera betur og einbeita okkur að næsta leik, gegn Bournemouth.“

Man United er í 6. sæti með 49 stig að loknum 31 leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×