Skoðun

Svona lítur með­virkni út

Drífa Snædal skrifar

Í lok mars hleyptu Stígamót, í samstarfi við stjórnvöld, af stað sínu árlega forvarnarátaki „Sjúkást“ þar sem jafnvægi í samskiptum eru til skoðunar út frá mismunandi einkennum, samfélagsstöðu og eiginleikum fólks. Átakið fer um allt land, í félagsmiðstöðvar, samfélagsmiðla, sem kennsluefni í skóla og víðar. Þetta gerum við til að varna því að ungt fólk (aðallega drengir) misbeiti valdi sínu gagnvart öðru ungu fólki (aðallega stúlkum) eða beiti jafnvel ofbeldi. Ekkert bendir til þess að kynbundið- og kynferðislegt ofbeldi sé að minnka, því miður. Það mun sennilega ekki gerast fyrr en staðið er með brotaþolum og það að beita ofbeldi hafi raunverulegar afleiðingar.

Á sama tíma og átakið fór af stað var annað í gangi í samfélaginu. KSÍ ákvað að fara gegn eigin stefnu og velja í landsliðið leikmann sem er kærður fyrir kynferðisbrot. Leikmanninum var hampað og landsliðsþjálfarinn gekk svo langt að segjast vonast til að brotaþolinn myndi nú ekki gera meira mál úr þessu. Stjórnmálafólk, forsetaframbjóðendur og fleiri mættu á leiki í útlöndum til að hvetja grunaðan kynferðisbrotamann áfram, stuðningsaðilar KSÍ létu hvergi bilbug á sér finna og nýkjörinn formaður KSÍ varði ákvörðunina. Fjölmiðlar ræddu fæstir þessa ákvörðun og ræður þar væntanlega einhverju að faðir viðkomandi leikmanns er íþróttafréttamaður sem fáir vilja styggja, maðurinn sem var fenginn til að lýsa landsleikjunum.

Það greip einfaldlega um sig múgmeðvirkni gagnvart manni sem er kærður fyrir kynferðisbrot. Á sama tíma kepptist formaður KSÍ við að segja að samtökin styddu brotaþola. Það sama hafa styrktaraðilar KSÍ hvern um annan lýst yfir þegar Stígamót hafa gert athugasemdir við stuðning þeirra við svo skipað landslið. Það virðist vera í lagi að styðja brotaþola þangað til það þarf í alvöru að kosta einhverju til, þangað til það þarf að taka afstöðu og ákvarðanir til að sýna raunverulegan stuðning í verki. Það er víst í lagi að vera grunaður um kynferðisbrot ef þú ert góður í fótbolta – það trompar allt.

Skilaboðin til unga fólksins og þjóðarinnar allrar eru þau að brotaþolar eigi helst ekki að gera vesen ef mikið er í húfi. Það er líka í lagi að beita ofbeldi ef þú ert góður í íþróttum – þá er ofbeldishegðun sópað undir teppi. Þessi skilaboð eru styrkt af hverju stórfyrirtækinu af öðru og hverjum valdhafanum af öðrum. Þetta er meðvirkni í hnotskurn, ofbeldi er fordæmt alveg þangað til það er orðið eitthvað vesen. Stígamót hamast í forvörnum á meðan grunuðum kynferðisbrotamanni er hampað sem fyrirmynd. Þessi skilaboð geta beinlínis ógnað öryggi ungs fólks (aðallega stúlkna).

Við förum fram á að KSÍ og styrktaraðilar þeirra geri betur og standi sannanlega með þolendum. Við förum fram á að fólk sem hefur áhrif og völd í samfélaginu standi raunverulega með brotaþolum og fordæmi ofbeldishegðun.

Höfundur er talskona Stígamóta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Biskupsval

Sigfinnur Þorleifsson,Vigfús Bjarni Albertsson skrifar

Sjá meira


×