Innlent

Boða til fundar til að ræða fram­tíð MÍR eftir dóms­mál

Kjartan Kjartansson skrifar
Fundur sem hópur fólks sem stefndi MÍR hefur boðað til um framtíð félagsins fer fram í safnaðarheimili Laugarneskirkju annað kvöld.
Fundur sem hópur fólks sem stefndi MÍR hefur boðað til um framtíð félagsins fer fram í safnaðarheimili Laugarneskirkju annað kvöld. Vísir

Áhugafólk um starfsemi íslensk-rússneska menningarfélagsins MÍR hefur boðað til opins fundar um framtíð þess í kjölfar dóms sem ógilti aðalfund félagsins og ákvarðanir sem voru teknar á honum. Fyrrum stjórn hefur sagst undirbúa nýjan aðalfund.

Deilur hafa staðið um Menningartengsl Íslands og Rússlands (MÍR), sögufrægt félag sem stofnað var af kommúnistum og Rússlandsvinum árið 1950, frá því að þáverandi stjórn félagsins ákvað að hætta starfsemi þess í þáverandi mynd og stofna þess í stað sjóð til styrktar verkefnum sem tengdust rússneskri menningu. Áformaði stjórnin að selja húsnæði félagsins að Hverfisgötu 105 og aðrar eignir til þess að fjármagna sjóðinn.

Þessu vildu þrír aldnir félagar ekki una, þar á meðal fyrrverandi formaður félagsins til áratuga, og höfðuðu dómsmál þar sem þeir kröfðust þess að ákvarðanir þessa efnis sem voru teknar á aðalfundi sumarið 2022 yrðu ógiltar.

Héraðsdómur Reykjavíkur varð við kröfum stefnendanna í síðasta mánuði. Taldi dómurinn að fundurinn hefði ekki verið löglega boðaður. Stjórnarkjör sem fór fram á fundinum var einnig ógilt. 

Einar Bragason, formaður fyrrverandi stjórnar, hefur sagt Vísi að stjórnin vinni að undirbúningi nýs aðalfundar og að til standi að leggja sömu tillögu fram aftur. Um ástæður þess að breyta starfsemi MÍR hefur Einar sagt að áhugi á henni hafi minnkað verulega, félagsmönnum fækkað mikið og orðið lítið virkir. Svo fámennt félag ráði ekki lengur við að reka stórt húsnæði.

Stjórnin hafi gert umdeildar breytingar á starfsemi MÍR

Nú hefur hópur fólks boðað til opins fundar um dóminn og sýn hans á framtíð MÍR í kvöld. Í fundarboði á samfélagsmiðlinum Facebook er fyrrverandi stjórn sögð umboðslaus og mæta stefnendunum í málinu með þrjósku, óbilgirni og ólund. Pattstaða sé í deilunni.

Stefnendurnir þrír: Ívar Jónsson, fyrrverandi formaður MÍR, Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir, fyrrverandi stjórnarmaður og eiginkona Ívars, og Kjuregej Alexandra Argunova, eru skrifaðir fyrir fundinum í fundarboðinu. Þau eru öll á níræðis- og tíræðisaldri. Aðeins Kjuregej er á meðal umsjónarmanna viðburðarins á Facebook.

Í færslu á síðu fundarins á Facebook skrifar Evegnía Mikaelsdóttir, einn fjögurra umsjónarmanna viðburðarins, að fyrrverandi stjórnin hafi gert umdeildar breytingar á starfseminni. Tengsl við rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna hafi verið slitin og rússneskumælandi hópa. Í ljósi þess að nokkur þúsund rússneskumælandi manna séu á Íslandi hafi í raun verið lokað á stóran hóp.

Einnig hafi samskipti við systurfélagið ODRI í Rússlandi og rússneska sendiráðið hér á landi fallið niður í tíð stjórnarinnar.

„Í ljósi dómsins telja stefnendur að þessir umboðslausu aðilar eigi að stíga til hliðar og afhenda húsnæðið, skjöl og reikninga félagsins o.þ.h. Hins vegar mæta stefnendur þrjósku, óbilgirni og ólund af hálfu mótaðilans sem og engan vilja til að fylgja dómsúrskurðinum. Þrátt fyrir mjög skýra dómsniðurstöðu er staðan enn óleyst. Því bjóða stefnendur öllum sínum félögum í MÍR og áhugafólki um málefni félagsins á opinn fund um MÍR og framtíð þess,“ segir í færslunni.

Opni fundurinn fer fram í safnaðarheimili Laugarneskirkju og hefst klukkan 18:30 í kvöld.

Tengdist ekki innrásinni beint

Aðalfundurinn þar sem ákveðið var að hætta starfsemi MÍR og breyta félaginu í menningarstyrktarsjóð var haldinn aðeins rúmum þremur mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Einar, formaður fyrrverandi stjórnarinnar, sagði Vísi í fyrra að innrásin hefði ekki átt beinan þátt í ákvörðuninni.

Upp úr samskiptum við sendiráðið hafi slitað tveimur árum fyrir innrásina út af ágreiningi sem tengdist hátíðarhöldum í kringum 75 ára afmælis loka síðar heimsstyrjaldarinnar. Núverandi sendiherra hafi síðan reynt að endurnýja sambandið.

„Þá vantar náttúrulega vini. Þeir finna alveg og sjá að við erum nú ekki hrifin af þessu brölti þeirra í Úkraínu Íslendingar almennt,“ sagði Einar þá.


Tengdar fréttir

Saka for­mann fyrr­verandi stjórnar um að eyði­leggja MÍR

Þrír félagar í íslensk-rússneska menningarfélaginu MÍR sem stefndu því fyrir dómi saka formann fyrrverandi stjórnar félagsins um að vinna að því að eyðileggja félagið og sóa fjármunum þess. Þeir sækjast eftir því að blása nýju lífi í starfsemina.

Halda á­formum um fram­tíð MÍR til streitu eftir dóm

Stjórn menningarfélagsins MÍR stefnir enn á að selja húsnæði félagsins og leggja niður starfsemi þess í núverandi mynd. Unnið er að undirbúningi nýs aðalfundar eftir að dómstóll ógilti ákvarðanir sem voru samþykktar á fundi sem hann taldi ekki löglega boðaðan.

Máttu ekki leggja félagið niður á fundi sem var boðaður með plaggi í glugga

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt afdrifaríkar ákvarðanir sem teknar voru á aðalfundi félagasamtakanna Menningartengsla Íslands og Rússlands (MÍR) í júní árið 2022. Dómurinn taldi að brotið hefði verið gegn jafnræði félagsmanna með því að boða til aðalfundarins með því að hengja tilkynningu í glugga húsnæðis félagsins.

Friðurinn úti hjá MÍR

Fyrrverandi formaður félagasamtakanna Menningartengsla Íslands og Rússlands (MÍR) til áratuga er á meðal þriggja félagsmanna sem hafa stefnt stjórn félagsins vegna ákvörðunar um að breyta því í styrktarsjóð og selja húsnæði þess. Stjórnarmenn vísa ásökunum stefnendanna um að ákvörðunin hafi verið ólögleg á bug.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×