Sport

Dag­skráin í dag: Ör­lög Liver­pool ráðast og úr­slita­keppni Subway-deildarinnar heldur á­fram

Smári Jökull Jónsson skrifar
Matteo Ruggeri og Alexis Mac Allister eigast við í fyrri leik Liverpool og Atalanta.
Matteo Ruggeri og Alexis Mac Allister eigast við í fyrri leik Liverpool og Atalanta. Vísir/Getty

Það er nóg um að vera á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag og í kvöld. Úrslitakeppnin í Subway-deildinni heldur áfram og þá ráðast örlög Liverpool í Evrópudeildinni.

Stöð 2 Sport

Þriðji leikur Njarðvíkur og Þórs frá Þorlákshöfn verður í beinni frá Ljónagryfjunni í Njarðvík klukkan 19:20. Staðan í einvíginu er 1-1 og verður spennandi að sjá hvort liðið tekur yfirhöndina í einvíginu.

Stöð 2 Sport 2

Fiorentina og Viktoria Plzen mætast á Ítalíu í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar ig hefst útsendingin klukkan 16:35.  Fyrri leiknum í Tékklandi lauk með 0-0 jafntefli og einvígið því galopið.

Klukkan 18:50 verður svo sýnt beint frá leik West Ham og Leverkusen í Evrópudeildinni en nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Leverkusen leiða 2-0 eftir heimaleik sinn í síðustu viku.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 14:00 hefst útsending frá Chevron Meistaramótinu á LPGA mótaröðinni í golfi. Útsending frá mótinu hefst á nýjan leik klukkan 22:00 í kvöld.

Klukkan 18:50 taka 8-liða úrslit Sambandsdeildarinnar hins vegar við en þá hefst útsending frá leik PAOK og Club Brugge. Belgíska liðið vann 1-0 sigur í fyrri leiknum.

Stöð 2 Sport 5

Leikur Vals og Hattar í 8-liða úrslitum Subway-deildarinnar verður sýndur beint frá klukkan 18:50. Þetta er þriðji leikur liðanna en Höttur gerði sér lítið fyrir og vann góðan sigur á deildarmeisturunum í síðasta leik á Egilsstöðum. Staðan í einvíginu er 1-1 en þrjá leiki þarf til að komast í undanúrslit.

Vodafone Sport

Hákon Arnar Haraldsson verður í eldlínunni með liði Lille sem mætir Aston Villa í 8-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar klukkan 16:35. Fyrri leiknum á Englandi lauk með 2-1 sigri Villa.

Klukkan 18:50 ráðast síðan örlög Liverpool en liðið mætir þá Atalanta á Ítalíu í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Atalanta vann mjög óvæntan 3-0 sigur í fyrri leiknum á Anfield og brekkan því ansi brött fyrir enska liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×