Fótbolti

Mar­tínez missir af fyrri undan­úr­slita­leiknum vegna leik­banns

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Martínez fékk alls þrjú gul spjöld í 8-liða úrslitum en var þó aldrei rekinn af velli.
Martínez fékk alls þrjú gul spjöld í 8-liða úrslitum en var þó aldrei rekinn af velli. EPA-EFE/MOHAMMED BADRA

Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa, missir af fyrri leik liðsins gegn Olympiacos í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu eftir að fá sitt annað gula spjald í vítaspyrnukeppninni gegn Lille í 8-liða úrslitum.

Þrátt fyrir að fá sitt annað gula spjald í leiknum fékk Martínez að klára leikinn og átti hann risastóran þátt í því að Villa tryggði sér sæti í undanúrslitum á kostnað Hákons Arnars Haraldssonar og félaga.

Nú hefur Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, staðfest að Martínez verður í leikbanni þegar Villa tekur á móti Olympiacos á Villa Park í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar þann 2. maí næstkomandi.

Þar sem Martinez fékk einnig gult spjald í fyrri leiknum gegn Lille fékk hann alls þrjú spjöld í einvíginu. Hann mun því þurfa að horfa á liðsfélaga sína taká móti Olympiacos úr stúkunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×