Innlent

Segja valda­rán framið og kirkju að­vent­ista klofna

Jakob Bjarnar skrifar
Gavin Anthony formaður safnaðarins. Þeir Jón og Ómar segja stjórnina þumbast við að veita upplýsingar og haldi ekki aðalfund. 
Gavin Anthony formaður safnaðarins. Þeir Jón og Ómar segja stjórnina þumbast við að veita upplýsingar og haldi ekki aðalfund.  vísir

Tveir félagar í Kirkju sjöunda dags aðventista (KSDA) bera stjórn safnaðarins þungum sökum og segja að þar hafi verið framið valdarán. Þeir segja söfnuðinn klofinn en undir lúra milljarða samningar þar sem heilt fjall er mulið og selt úr landi.

Þeir Jón Hjörleifur Stefánsson guðfræðingur og Ómar Torfason sjúkraþjálfari rita grein þar sem þeir segja yfirstandandi aðalfund aðventista nú orðinn 18 mánaða gamlan, þann lengsta sem staðið hefur í 120 ára sögu trúfélagsins á Íslandi. Ástæðan er leynd sem snýst um samninga við Eden Mining, sem er í eigu Eiríks Ingvasonar og Kristins Ólafssonar og þeir eru báðir meðlimir í trúfélaginu. Eden Mining er milliliður sem hefur selt Heidelberg námuréttindi.

„Eigendur Eden Mining hafa nefnilega gríðarlegra hagsmuna að gæta. Ef Ölfus veitir Heidelberg endanlega leyfi til að reisa verksmiðjuna þá munu eigendur Eden Mining hagnast gríðarlega. Að fresta aðalfundi hefur líka verið tekjulind fyrir launaða stjórnendur því þeir halda áfram að taka sér laun úr sjóðum kirkjunnar,“ segir meðal annars í afar athyglisverðri grein þeirra Jóns og Ómars.

Trúfélag breytist í umboðsskrifstofu fyrir námagröft

Þar er því haldið fram að núverandi stjórn hafi sett tvö og aðeins tvö verkefni í öndvegi en fjársvelt önnur verkefni.

„Fjölskyldumeðlimir og vinir stjórnarinnar og Eden Mining hafa verið ráðnir í allmargar stöður í þessum tveimur verkefnum. Núverandi starfsmannafjöldi trúfélagsins hefur aukist undanfarin ár og hefur ekki verið jafnmikill áratugum saman. Aukningin er aðallega vegna þess að trúfélagið getur ráðið fleiri núna sökum tekna af samningum kirkjunnar við Eden Mining.“

Hér er því um gagnkvæma hagsmuni að ræða hjá Eden Mining og núverandi stjórn að ekki sé hróflað við samningum og að núverandi stjórn sitji sem lengst og verði helst endurkjörin. 

„Aðrir meðlimir segja hinsvegar að þetta sé spilling þar sem viss hópur hagnist á þessu fyrirkomulagi en ekki trúfélagið í heild sinni. Áframhaldandi seta stjórnarinnar sé valdarán þar sem hún sitji í umboðsleysi.“

Vísir hefur fjallað ítarlega um verkefnið enda um umdeilda risaframkvæmd að ræða; stórfelldir efnisflutningar um Þorlákshöfn til Evrópu. Risafyrirtækið HeidelbergCement hyggst nota jarðefnin sem íblöndunarefni í sement. Ráðgert er að moka heilu fjalli, Litla-Sandfelli í Þrengslunum, í burtu og flytja úr landi um Þorlákshöfn til frekari vinnslu. Þetta fjall er í eigu Kirkju sjöundadags aðventista.

Málið klofið trúfélagið í tvennt

Áætlanirnar eru umdeildar innan sveitarfélagsins en þetta mun breyta Þorlákshöfn í námabæ. Þessar áætlanir myndu breyta höfninni, ásýnd bæjarins og skapa gríðarlega mikla vörubílaumferð milli Þrengsla og Þorlákshafnar, auk þess sem Litla-Sandfell myndi hverfa með öllu. Áætlanirnar hafa einnig verið það umdeildar að Heidelberg hefur þegar breytt plönum sínum einusinni og sveitastjórnin hefur heitið íbúum íbúakosningu um málið. Hún verður haldin þann 1. júní næstkomandi.

Í grein þeirra félaga er því haldið fram að minna hafi verið fjallað um það í fréttum hvers konar usla þessar fyrirætlanir hafa valdið innan KSDA, málið sé svo alvarlegt að það hafi klofið trúfélagið í tvennt. Vísir ræddi á sínum tíma við Gavin Anthony, formann KSDA, en hann vildi ekki gera mikið úr málinu. Hann taldi það reyndar jákvætt í alla staði:

„Náman hefur í fyrirhuguðu fyrirkomulagi bæði í för með sér atvinnusköpun í sveitarfélaginu auk mikils sparnaðar á kolefnislosun í byggingariðnaði og þar með afleidd góð áhrif á heimsbyggðina alla. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum verður sparnaðurinn af kolefnislosun við nýtingu efnis úr námunni hið minnsta á pari við það sem allur íslenski bílaflotinn veldur,“ sagði Gavin í samtali við Vísi.

Kolólöglegir samningar

Hans orð eru á pari við þau sem Þorsteinn Víglundsson, talsmaður Heidelberg á Íslandi, hefur látið falla. En hann hefur sagt að í þetta verkefni verið ekki farið án þess að það verði í sátt við íbúa Þorlákshafnar. Þeir vilja verða góður granni.

Hins vegar vilja margir meðlimir KSDA meina að undirritun samnings um námuvinnslu sé ólögleg. Í 18. grein samþykkta KSDA er lagt blátt bann við að stjórn selji eignir trúfélagsins ef það fellur ekki undir venjulega starfsemi. Í slíkum tilfellum verður stjórn að leggja slík áform fyrir aðalfund. Meðlimir hafa bent á að námurekstur er ekki venjuleg starfsemi trúfélagsins og að námusamningar fælu í sér sölu á jarðefnum. Jarðefnið í námunum er sennilega verðmætasta eign trúfélagsins og því ætti ákvæðið hér við.

Jón og Ómar segja KSDA halda því fram að megin tilgangur félagsins sé boðun fagnaðarerindisins og að kristið fólk eigi að sýna fordæmi í viðskiptasiðferði. „Engu að síður sér stjórn trúfélagsins ekkert að því að ganga í viðskiptasamband við risastórt fyrirtæki með umdeildan orðstír. […] Heidelberg er eitt stærsta fyrirtæki heimsins og hefur margoft verið sakað um mannréttindabrot í mörgum löndum sem það starfar í, t.d. í Palestínu. Um þetta eru til skýrslur.

Málið kært til sýslumanns og lögreglu

Í greininni kemur fram að í upphafi árs 2024 hafi sumir meðlimir safnaðarins áttað sig á að samkvæmt núverandi lögum um lífsskoðunar- og trúfélög sinnir Sýslumaður ríkisaðhaldi þegar það kemur að slíkum félögum. Þeir höfðu því samband við Sýslumann og röktu málið fyrir honum, sérstaklega þann þátt að stjórnin sæti í leyfisleysi og neitaði að ljúka aðalfundi. 

„Ef Sýslumaður metur stöðuna sem svo að ekki sé verið að fara eftir lögum getur hann kallað eftir aðalfundi – það er því möguleiki að slíkur þrýstingur leiði til þess að seinnihluti aðalfundar verði loksins haldinn á næstunni.“

Þá segir einnig að sumir meðlimir hafi einnig haft samband við lögreglu og kært fyrir henni það að stjórnin sitji umboðslaus og væri því mögulega að fara gegn landslögum með því að halda áfram að borga sér laun. „Lögreglustjóri vísaði málinu frá og safnaðarmeðlimir áfrýjuðu úrskurði hans til embættis Ríkissaksóknara. Úrskurður verður væntanlega fyrirliggjandi um miðjan maí næstkomandi.“


Tengdar fréttir

Hvaða hagsmunir ráða för?

Nú þegar nýjar upplýsingar birtast bæði íbúum og kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins Ölfuss á síðum Morgunblaðsins um frekari og mjög stórtækar fyrirætlanir Heidelberg Materials í Þorlákshöfn, er rétt að fara aðeins yfir stöðuna.

Verksmiðja eða gríðarstórt loftslagsverkefni?

Í síðustu viku hélt Heidelberg Materials vel heppnaðan íbúafund um fyrirhugaða móbergsvinnslu í Þorlákshöfn þar sem íbúum bæjarins og sveitarfélagsins alls voru kynnt áform fyrirtækisins.

Aðventistar takast á um námugröft innan sinna vébanda

Í kvöld hefst kjörfundur kirkju Sjöundadags aðventista en þar má búast við því að tekist verði á um óbeina aðkomu Aðventkirkjunnar að risavöxnu verkefni HeidelbergCement í Þorlákshöfn. Vel gæti komið til hallarbyltingar innan safnaðarins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×