Áskorun

Sjö hættu­legar gryfjur fyrir hjón og pör að falla í

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ætli algengustu skýringarnar á því að hjónabönd liðast í sundur séu oftast þær sömu? Og ef svo er, hverjar eru þá gryfjurnar sem öll hjón ættu að forðast?
Ætli algengustu skýringarnar á því að hjónabönd liðast í sundur séu oftast þær sömu? Og ef svo er, hverjar eru þá gryfjurnar sem öll hjón ættu að forðast? Vísir/Getty

Ætli það komi ekki upp mismunandi atriði í huga fólks þegar það hugsar um hverjar séu algengustu gryfjurnar fyrir pör að falla í. Með þeim afleiðingum að sambandið liðast í sundur.

Stundum með ljótum skilnaði.

Alltaf í það minnsta erfiðum.

En hverjar ætlu séu þessar algengustu gryfjur að forðast? Ætli það séu einhverjar keimlíkar ástæður sem skýra oftast út, hvers vegna hjónabönd eða parsambönd ganga ekki upp?

Jú, samkvæmt vefsíðunni EverydayHealth eru það sérstaklega sjö hættulegar gryfjur sem öll pör ættu að forðast eins og heitan eldinn.

Því annars getur farið illa.

Þessar sjö hættulegu gryfjur eru:

  1. Léleg, lítið eða nánast engin samskipti
  2. Einhver utanaðkomandi, eða einhverjir, hafa of mikil áhrif á parsambandið (mjög oft vinir eða vandamenn/fjölskylda)
  3. Fíknivandi sem ekki er tekið á
  4. Það vantar nánd í sambandið, kynlíf, snerting
  5. Peningar, fjárhagur. Að tala ekki saman um peningamálin eða að vera ekki sammála
  6. Þið þroskist frá hvort öðru (vegna þess að sambandið hefur ekki verið ræktað)
  7. Þið leitið ekki aðstoðar fyrir sambandið, til dæmis hjá pararáðgjafa eða sálfræðingi.

Tengdar fréttir

„Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“

„Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn. Ég er bara svona. Ég er svona vegna þess að það er meitlað í genin mín“ segir Ásmundur Gunnarsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Kvíðamistöðinni vera dæmi um setningar sem félagskvíðinn segir við okkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×