Innlent

Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í ein­hverri bíó­mynd“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Elísabet er orðin þreytt á framkvæmdum við Breiðholtsbraut, sem hafa lengt leið hennar í vinnuna svo um munar.
Elísabet er orðin þreytt á framkvæmdum við Breiðholtsbraut, sem hafa lengt leið hennar í vinnuna svo um munar. Vísir/Einar/Sara

Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd.

Vinna við breikkun Breiðholtsbrautar hefur nú staðið yfir um nokkurt skeið - og reynst Elísabetu Guðrúnar og Jónsdóttur bókstaflegur fjötur um fót.

„Ég bý hérna rétt hjá og er að vinna hérna hinum megin við hæðina í Urðarhvarfi. Ég hafði gert það að vana mínum að fara fótgangandi yfir hæðina og það tók svona korter, tuttugu mínútur um það bil.“ 

Í fréttinni hér fyrir ofan sjáum við grafíska framsetningu á þróun leiðarinnar. Fyrst er það leiðin sem Elísabet var vön að ganga í vinnuna, rétt rúmur kílómetri frá heimili hennar í Breiðholti og á vinnustaðinn í Kópavogi. En svo var hæðinni sem hún gekk yfir lokað og hún byrjaði að hjóla, enda leiðin búin að lengjast um heilan kílómetra. 

Næst var stíg við Breiðholtsbraut lokað, 600 metra hjáleið bættist við og leiðin í heild þar með búin að tvöfaldast. Enn ein lykkjan bættist svo við vegna framkvæmda við undirgöng og loks var gönguljósi við Kópavogsmörkin lokað með þeim afleiðingum að leið Elísabetar í vinnuna er nú þreföld á við það sem hún var fyrst.

Grátbroslegt

„Ég sé ekki að það sé nauðsynlegt að loka þessu öllu samtímis. Ég held það væri hugsanlega, kannski hægt að klára eitt svæði, loka þar og síðan fara yfir í næsta,“ segir Elísabet.

„Þetta er komið á það stig að ég verð ekki pirruð, heldur fer bara að hlæja.“

Við fórum á vettvang í kvödfréttum Stöðvar 2 og í fréttinni sjáum við glitta í munna undirgangnanna sem Elísabet notaði eitt sinn. Þau eru augljóslega ekki aðgengileg lengur með góðu móti. Umrædd hæð reyndist orðin afar torfær, auk þess sem girt hefur verið fyrir hana og aðgengi að henni greinilega bannað.

Elísabet bindur vonir við greiðan framgang framkvæmdanna, svo hún neyðist ekki til að fara á bíl þessa hlægilega stuttu vegalengd. 

„Ég gæti allt eins verið að vinna niðri í Skeifu núna, en samt er þetta rétt hjá. Þetta er mjög skrýtið. Þetta er eins og í einhverri bíómynd.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×