Erlent

Settur út af sakra­mentinu fyrir að stýra minningar­stund um Naval­ní

Kjartan Kjartansson skrifar
Maður heldur á mynd af Alexei Navalní og blómi eftir að fréttir bárust af dauða hans í fangelsi í febrúar.
Maður heldur á mynd af Alexei Navalní og blómi eftir að fréttir bárust af dauða hans í fangelsi í febrúar. Vísir/EPA

Rússneska rétttrúnaðarkirkjan hefur sett prest sem stýrði minningarathöfn um Alexei Navalní, stjórnarandstöðuleiðtogann, í þriggja ára bann. Hann þarf að láta sér nægja að lesa sálma þar til ákvörðun verður tekin um hvort hann fær aftur að starfa sem prestur.

Engin ástæða var gefin fyrir refsingu Dmitrí Safronov í yfirlýsingu frá biskupsdæmi rétttrúnaðarkirkjunnar í Moskvu, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Hann má ekki klæðast kufli, blessa fólk eða ganga með kross presta kirkjunnar fyrr en árið 2027. Safronov verður einnig færður í aðra kirkju þar sem hann fær það hlutverk að lesa sálma.

„Við lok skriftasakramentsins [...] verður ákvörðun tekin um möguleikann á hvort hann gegni áfram prestsstörfum,“ sagði í yfirlýsingu kirkjunnar sem er einarður bandamaður Pútín forseta og styður innrás hans í Úkraínu með ráð og dáð.

Þúsundir manna tók þátt í minningarathöfninni um Navalní sem Safronov stýrði í Moskvu 26. mars. Navalní lést skyndilega, aðeins 47 ára að aldri, í fangelsi við norðurheimskautið í febrúar. Hann hafi verið einn helsti gagnrýnandi Vladímírs Pútín forseta Rússlands og ríkisstjórnar hans um árabil. Navalní sakaði Pútín um að bera ábyrgð á því að eitrað var fyrir honum með taugaeitri árið 2020.

Eftir veikindin sneri Navalní heim til Rússlands þar sem hann var þegar handtekinn fyrir meint brot á skilorði fjársvikadóms sem hann hlaut á sínum tíma. Rússnesk yfirvöld töldu hann hafa rofið skilorðið með því að gefa sig ekki reglulega fram við þau á meðan hann lá í dái á sjúkrahúsi í Berlín.

Á næstu árum var Navalní dæmdur fyrir fleiri meint brot sem byggðu meðal annars á því að rússnesk stjórnvöld skilgreindu stjórnmálasamtök hans afturvirkt sem ólögleg öfgasamtök.

Foreldrar Navalní voru ósátt við að fá ekki að sjá lík sonar síns fyrr en nokkru eftir dauða hans. Sakaði móður hans yfirvöld um að ætla sér að grafa líkið í kyrrþey.


Tengdar fréttir

Sjálfs­ævi­saga Naval­ní væntan­leg í haust

Bók með æviminningum Alexei Navalní heitins, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, verður gefin út í haust. Útgefandi hennar segir bókina „lokabréf“ Navalní til heimsbyggðarinnar og að hann hafi byrjað að skrifa hana eftir að eitrað var fyrir honum.

Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís

Yulia Navalnaya, ekkja pólitíska andófsmannsins Alexei Navalní, réði sér lífvörð eftir að ráðist var á bandamann hans til margra ára með hamri í Vilníus, höfuðborg Litháen, í síðasta mánuði. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×