Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu

Bruno Fernandes kláraði dæmið í kvöld.
Bruno Fernandes kláraði dæmið í kvöld. Getty

United marði Coventry eftir vítakeppni í undanúrslitum bikarsins um helgina og pressa var á liðinu fyrir leik kvöldsins.

Jayden Bogle kom gestunum yfir snemma leiks en Harry Maguire skoraði annan leikinn í röð til að jafna undir lok fyrri hálfleiks.

Strax í byrjun síðari hálfleiks komst Sheffield yfir á ný með marki Ben Brereton-Díaz en Bruno Fernandes jafnaði af vítapunktinum. Hann skoraði öðru sinni á 81. mínútu til að veita United forystuna og þá skoraði Rasmus Höjlund fjórða markið skömmu síðar til að gera út um leikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira