Fótbolti

Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mbappé var í stuði í kvöld en fagnaðarlætin gætu verið rétt að byrja í kvöld.
Mbappé var í stuði í kvöld en fagnaðarlætin gætu verið rétt að byrja í kvöld. Getty

Kylian Mbappé fór fyrir PSG líkt og svo oft áður er liðið vann öruggan 4-1 útisigur á Lorient í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Ef úrslit síðar í kvöld falla með PSG er titillinn tryggður.

Mbappé skoraði tvö og lagði upp annað í sigri kvöldsins. Ousmané Dembélé skoraði hin tvö mörkin fyrir Parísarliðið.

PSG er með 69 stig eftir 30 leiki á toppi deildarinnar. Monaco og Lille koma þar á eftir en þau lið mætast innbyrðis í kvöld.

Vinni Monaco, liðið í öðru sæti, leikinn ekki er titillinn Parísarmanna þar sem bilið milli liðanna eftir sigur PSG er 14 stig en aðeins tólf stig í pottinum eftir leik kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×