Fótbolti

Bikar­meistararnir örugg­lega á­fram eftir smá hikst

Siggeir Ævarsson skrifar
Víkingar byrja tímabilið af krafti.
Víkingar byrja tímabilið af krafti. Vísir/Hulda Margrét

Fimm leikir fóru fram í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla kl. 15:00 í dag. Ríkjandi bikarmeistarar Víkings tryggðu sig örugglega áfram en D-deildar lið Víðis komst í 0-1 í upphafi leiks með ótrúlegu marki.

David Toro Jimenez sá sér leik á borði þegar aukaspyrna var dæmd á 13. mínútu og skoraði af um það bil 70 metra færi í autt mark Víkinga þar sem Pálmi Rafn markvörður var staðsettur alltof framarlega til að eiga möguleika á að verja skotið.

Adam var þó ekki lengi einn í paradís en Aron Elís Þrándarson jafnaði metin þremur mínútum seinna. Það tók bikarameistarana dágóða stund að komast yfir þar sem Víðismenn vörðust vel en Helgi Guðjónsson kom þeim yfir á 68. mínútu og þeir Ari Sigurpálsson og Nikolaj Hansen innsiglu svo 4-1 sigur undir lokin.

B-deildarlið ÍR sótti KA heim þar sem gestirnir jöfnuðu 1-1 í uppbótartíma. Grípa þurfti til framlengingar og kom sigurmarkið ekki fyrr en á 119. mínútu en það var af dýrari gerðinni. Daníel Hafsteinsson hetja KA manna að þessu sinni.

Skagamenn áttu náðugan dag á Skipaskaga þar sem Tindastóll kom í heimsókn, en Stólarnir leika í D-deildinni, 4. deild. Lokatölur 3-0 þar Ingi Þór Sigurðsson skoraði tvö fyrstu mörkin en brenndi svo af vítaspyrnu í seinni hálfleik og missti þar með af þrennunni. Hilmar Elís Hilmarsson innsiglaði svo sigurinn skömmu síðar.

Boðið var upp á tvo Lengjudeildarslagi þar sem mættust annars vegar Afturelding og Dalvík/Reynir og hins vegar Grótta og Þór. Tvö rauð spjöld fóru á loft í seinni leiknum.

Afturelding vann öruggan 4-1 sigur á nýliðum Dalvíkur/Reynis þar sem Patrekur Orri Guðjónsson skoraði tvö en Tómas Þórðarson skoraði eina mark gestanna.

Þórsarar gerðu góð ferð á Seltjarnarnesið og lögðu Gróttu 0-3. Rafael Victor skoraði fyrstu tvö mörk gestanna en skömmu áður hafði Tareq Shihab, leikmaður Gróttu, fengið sitt annað gula spjald og þar af leiðandi rautt. Bjarki Þór Viðarsson, leikmaður Þórs, fékk svo beint rautt á 84. mínútu þegar hann rændi Gróttu augljósu marktækifæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×