Viðskipti innlent

Hafa tryggt út­gáfu ís­lenska tölvuleiksins Island of Winds

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr tölvuleiknum Island of Winds.
Úr tölvuleiknum Island of Winds. Parity

Íslenski tölvuleikurinn Island of Winds (Eyja vindanna) sem framleiddur er af Parity Games hefur tryggt sér útgáfu. Útgefandinn er fyrirtækið ESDigital Games. Mun leikurinn koma út á heimsvísu samtímis á PC, PlayStation 5 og Xbox X/S á fyrsta árshluta 2025.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Parity. Þar segir að fyrirtækið leggi áherslu á jafnrétti og fjölbreytni. Aðalpersóna leiksins sé verndarvætturinn Brynhildur Hansdóttir, fjölkunnug sveitakona á miðjum aldri.

Sögusviðið er svonefnd „eyja vindanna,“ en um er að ræða ævintýraheim sem svipar til Íslands á 17. öld. Parity sækir innblástur til íslenskrar náttúru, þjóðsagna og þjóðhátta. Leikurinn er einspilunarleikur og fjallar um söguhetjuna Brynhildi og hvernig hún rís upp til að vernda eyjuna sína og takast á við áskoranir lífsins þó vindar blási á móti.

Parity hefur hlotið styrk frá Tækniþróunarsjóði og fjármögnun frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Þar að auki hefur endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostnaðar reynst verkefninu vel og gert fyrirtækið samkeppnishæft við erlend fyrirtæki. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá því að vinna við leikinn hófst og Eyja vindanna stækkað að sama skapi svo um munar síðustu ár.

Í leiknum má finna sjö ólík landsvæði og fjöldan allan af furðuverum sem allar byggja á íslenskum þjóðsögum. Leikmenn geta galdrað og leyst þrautir, kynnst sögu eyjunnar og íbúum hennar, og leitað leiða til að berjast gegn dularfullum seiðskratta sem raskað hefur ró landsins og komið umhverfinu úr jafnvægi. Bardagakerfið er sér á parti og byggir á samkennd umfram fjandsemi, þar sem markmið leiksins er frekar að hjálpa og lækna heldur en að meiða og deyða.

„Þetta er risastór áfangi fyrir okkur og þýðir að leikurinn mun sannarlega koma út og það á enn stærri markað en við sáum fyrir í upphafi. Þetta eru spennandi tímar fyrir ungt, lítið leikjafyrirtæki þar sem áhersla hefur alltaf verið lögð á framlag kvenna til tölvuleikjagerðar. Parity er eitt fárra tölvuleikjafyrirtækja í heiminum þar sem konur og karlar eru í jöfnu hlutfalli og skapar sér þar með sérstöðu bæði hér á landi og erlendis svo eftir hefur verið tekið,“ segir María Guðmundsdóttir, forstjóri og stofnandi Parity Games.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×