Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Blóðvellir heimilanna

Markhópurinn eru börn og unglingar. Samt leikur vafi á því hvort efnið sé við hæfi barna. Tugir ef ekki hundruð ofbeldisfullra tölvuleikja eru til sölu í verslunum á Íslandi. Í Kompási í kvöld kynnumst við meðal annars tölvuleik þar sem mannæta er í aðalhlutverki og veltum fyrir okkur hvaða áhrif slíkir leikir geti haft á börn og unglinga.

Stöð 2
Fréttamynd

Geðveik tónlist

Já, í Kompási í kvöld fjöllum við um listamann sem á við geðhvörf að stríða; listamann sem allir helstu tónlistarmenn Íslands vilja spila með. Tónlistin er hjartnæm enda kemur hún beint frá hjartanu. Einlæg með eindæmum.

Stöð 2
Fréttamynd

Evran

Peningar eru ekki allt en án þeirra staðnar samfélagið. Spurt er; staðnar íslenskt samfélag, taki það ekki upp gjaldmiðil Evrópusambandsins? Þær raddir verða sífellt háværari sem vilja að Íslandi efli tengslin við Evrópusambandið, kasti krónunni fyrir róða og taki upp Evruna. En er það hægt? Og er það hægt án þess að ganga í ESB?

Stöð 2
Fréttamynd

Actavis

Actavis starfar á markaði sem þúsundir fyrirtækja keppa á, frmaleiðir og selur samheitalyf en Actavis gerir fleira. Actavis kaupir fyrirtæki í sama geira. Af sextíu fyrirtækjum sem félagið hefur kannað stöðuna hjá hefur það keypt tuttugu. Það virðast engin takmörk vera fyrir því hvað Actavis getur stækkað mikið. Það starfar nú þegar í meira en 30 löndum og er að hasla sér völl í einu mikilvægasta hagkerfi heims, Bandaríkjum Norður-Ameríku.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauðadópið II

Hún býr við algert svartnætti, segir að kerfið hafi brugðist sér og hugsar um það eitt að verða sér úti um lyf sem hún leysir upp og sprautar í æð, raunar í opið sár. Við vörum eindregið við myndunum sem fylgja með þessari umfjöllun, þær eru alls ekki við hæfi barna og viðkvæmra. Við höldum áfram umfjöllun um læknadópið sem flæðir yfir fíkniefnamarkaðinn. En hvaðan koma þessi efni? Konan kaupir þau dýrum dómum, bæði á götunni og fær þau ávísuð hjá lækni.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauðadópið - Contalgin

Dauðadópið flæðir yfir íslenskan fíkniefnamarkað. Contalgin er morfín, skylt heróíni. Það er ætlað krabbameinssjúkum en er orðin heitasta söluvaran á götunni. Sex manns deyja á hverju ári á Íslandi vegna ofneyslu morfínlyfja og alls hafa þrjátíu manns látist á síðustu fimm árum.

Stöð 2
Fréttamynd

Keisaraskurður - tíkin Sara

Besti vinur mannsins á allt gott skilið. Hann hefur setið við fótskör meistara síns frá aldaöðli og lýtur núorðið ekki lakari kjara en hann, klæddur í nýjasta tískufatnað, snyrtur á sérstökum hársnyrtistofum og fær læknisþjónustu ekki síður en mannfólkið. Tíkin Sara þurfti á fæðingarhjálp að halda. Kompás fylgdist með þegar eigandi hennar fór með hana á dýraspítalann í Víðidal til að bjarga lífi hennar og hvolpanna.

Stöð 2
Fréttamynd

Læknadóp, Evran og tíkin Sara

Í Kompási annað kvöld, sunnudag 27. nóvember verður fjallað um læknadóp og sýnt fram á hve auðvelt er að nálgast pillurnar sem ganga kaupum og sölum á götunni. Þá verður ítarleg fréttaskýring um Evruna og loks fylgir Kompás tíkinni Söru í keisaraskurð á dýraspítalann í Víðidal.

Stöð 2
Fréttamynd

Fyrirtækið Sigur Rós

Sigur Rós er ekki bara hljómsveit. Sigur Rós er fyrirtæki, fyrirtæki sem veltir tugum milljóna króna á hverju ári! Erlendir aðdáendur trúa því að hljómsveitin njóti liðsinnis álfa við tónlistarsköpunina og hafa keypt meira en tvær milljónir platna.

Stöð 2
Fréttamynd

Vonin vaknar

Við fylgjum ungri konu í lyfjameðferð vegna brjóstakrabbameins. Hún og fjölskylda hennar heyja harða baráttu. Sjúkdómurinn leggur 25 konur að velli hér á landi á hverju ári. Ný lif auka lífslíkur slíkra sjúklinga.

Stöð 2
Fréttamynd

Smiðir á svörtu

Öll samfélög eiga sér "svart hagkerfi", misstórt eftir þjóðum. Á svarta markaðnum á Íslandi er í auknum mæli töluð - útlenska! Rannsókn Kompáss hefur leitt í ljós að Litháar, sem vinna hér á landi á grundvelli þjónustusamninga, eru með á bilinu 20 til 30 þúsund krónur á mánuði.

Stöð 2
Fréttamynd

Alvöru fréttaskýringaþáttur

Kompás, nýr íslenskur fréttaskýringaþáttur hefur göngu sína á sunnudag. Þátturinn verður vikulega á dagskrá á samtengdum rásum nýju fréttastöðvarinnar NFS og Stöðvar 2. Hér er um alvöru fréttaskýringaþátt að ræða þar sem vönduð og hispurslaus rannsóknarblaðamennska er höfð í hávegum.

Innlent