Innlent

Alvöru fréttaskýringaþáttur

Kompás, nýr íslenskur fréttaskýringaþáttur hefur göngu sína á sunnudag. Þátturinn verður vikulega á dagskrá á samtengdum rásum nýju fréttastöðvarinnar NFS og Stöðvar 2. Hér er um alvöru fréttaskýringaþátt að ræða þar sem vönduð og hispurslaus rannsóknarblaðamennska er höfð í hávegum.

Í hverjum þætti verða krufin til mergjar þrjú til fjögur heit fréttamál; jöfnun höndum dregin fram ný og áður ókunn sjónarmið á málum sem þegar hafa komist í fréttir og nýjar uppgövanir dregnar fram í kastljósið. Eins og nafnið gefur til kynna fer Kompás í allar áttir, er ekkert óviðkomandi og verður leitast við að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi í hverjum þætti. Þannig má segja að hann eigi sér að vissu leyti erlendar fyrirmyndir í virtum fréttaskýringaþáttum á borð við 60 minutes og 48 Hours.

Fréttarannsókn og umsjón er í höndum Jóhannesar Kr. Kristjánsson en kynnar eru m.a. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Logi Bergmann Eiðsson.

Í fyrsta þætti verða tekin fyrir þrjú mál; dregnar verða fram nýjar og sláandi upplýsingar um meint ólöglegt vinnuafl á Íslandi, fjallað um nýtt undralyf sem talið er að muni reynast þýðingarmikið í baráttunni gegn brjóstakrabbameini og að endingu verða umsvif hljómsveitarinnar Sigur Rósar skoðuð út frá viðskiptalegu sjónarhorni, en reksturinn í kringum þessa heimsþekktu íslenku hljómsveit er orðinn að stóru fyrirtæki. NFS - alltaf, allstaðar
Kompás er einn af lykilþáttum á nýju sjónvarpsstöðinni NFS sem fór í loftið í dag, föstudag. NFS er fyrsta stöðin sinnar tegundar á Íslandi; sjónvarpsstöð sem helgar sig fréttum og fréttatengdu efni.

Með tilkomu NFS verður í fyrsta sinn boðið upp á fréttir í sjónvarpi frá morgni til miðnættis en á virkum dögum verða sendir út fréttatímar frá nýrri fréttastofu NFS í Skaftahlíð 24 á klukkutíma fresti og fréttayfirlit á hálftíma fresti. Um helgar eru fréttir á tveggja klukkutíma fresti frá morgni til kvölds. Sérstök áhersla verður lögð á hádegis- og kvöldfréttatíma sem verða ítarlegir og langir þar sem íþróttum og veðri verða einnig gerð betri skil en áður hefur tíðkast hér á landi. Auk þess verður boðið uppá fjölda nýrra íslenskra frétta- og fréttaskýringaþátta og mun því íslensk dagskrárgerð skipa ríflega 80% af dagskrá stöðvarinnar.

NFS hefur það að höfðumarkmiði að vera til staðar, flytja nýjustu fréttirnar, alltaf, allstaðar. Öll útsending stöðvarinnar verður því í opinni dagskrá og ekki verður aðeins hægt að nálgast hana í gegnum sjónvarp á rás 6 hjá Digital Íslandi heldur einnig í tölvum hjá VísirVefTV á visir.is. Ennfremur gefst kostur að hlýða á hana nær alfarið á Talstöðinni.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×