Innlent

Allir nýnemar fá skólavist

Allir nýir umsækjendur um vist í framhaldsskólum landsins fá skólavist, þrátt fyrir að aldrei hafi jafnhátt hlutfall árgangs nýnema sótt um. Í fyrra beið fjöldi nýnema í óvissu svo vikum skipti. Nýtt innritunarkerfi er helsta ástæða þess að þetta endurtók sig ekki. Um 95% árgangsins sem var að ljúka tíunda bekk sótti um að hefja framhaldsskólanám í haust. Er það hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra segir að allir þessir nemendur fái skólavist í haust. Þó að Verslunarskólinn, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Kvennaskólinn hafi þurft að hafna töluverðum fjölda nemenda, bjóðist öllum að hefja nám í þeim skólum sem sótt var um til vara. Í fyrra beið stór hópur nýnema í óvissu langt fram eftir sumri, þar sem hreinlega lá ekki ljóst fyrir hvort allir fengju að hefja nám í framhaldsskólum sem eftir því óskuðu. Ekki lá fyrir hve margir höfðu tvískráð sig og enginn virtist hafa næga yfirsýn yfir skráningarnar til að geta svarað því hvort skólarnir önnuðu öllum nemendunum. Steingrímur segir stórbætt innritunarkerfi helstu ástæðuna fyrir því að þetta hafi ekki endurtekið sig. Nú sæki allir um rafrænt og því hafi ráðuneytið heildstæða yfirsýn yfir allar umsóknir og eins hvaða skóla hafi verið sótt um til vara. Enn liggur þó ekki fyrir hvort framhaldsskólarnir geti tekið við eldri nemendum, sem vilja hefja nám á nýjan leik. Það er í höndum einstakra skóla að taka um það ákvörðun. Þegar líða tekur á sumarið liggur væntanlega fyrir hvort hægt verði að finna pláss fyrir þá líka.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×