Golf

Birgir Leifur naumlega áfram

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG komst í dag naumlega í gegnum niðurskurð eftir þriðja hring á Ryder Cup áskorendamótinu í Golfi sem fram fer í Wales.

Birgir Leifur lék þriðja hringinn í dag á 4 höggum yfir pari vallarins eða 75 höggum. Eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 73 höggum fór hann annan daginn á 68 höggum í gær eða 3 höggum undir pari.

Í dag fékk Birgir Leifur þrjá fugla og fimm skolla en fékk svo þrefaldan skolla á sautjándu holu. Hann er samtals á 4 höggum yfir pari fyrir lokahringinn á morgun og er í 52. sæti ásamt sjö öðrum kylfingum en keppendur eru 69 talsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×