Golf

„Með betri stjórn á til­finningunum mínum en nokkurn tímann áður“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Scottie Scheffler fagnar hér sigri á Mastersmótinu í gærkvöldi.
Scottie Scheffler fagnar hér sigri á Mastersmótinu í gærkvöldi. AP/Charlie Riedel

Scottie Scheffler leit út eins og kylfingur í sérflokki þegar hann vann öruggan og sannfærandi sigur á Mastersmótinu í golfi í gærkvöldi.

Þessi 27 ára gamli Bandaríkjamaður hefur nú unnið Mastersmótið tvisvar sinnum á ferlinum og hann hefur verið efsti maður heimslistans í samtals 83 vikur síðan hann komst þangað fyrst í mars 2022.

Þetta var þriðja mótið sem Scheffler vinnur í ár. Hann vann bæði Arnold Palmer Invitational mótið og Players meistaramótið viku síðar.

„Mér finnst eins og ég sé að spila mjög gott golf núna,“ sagði Scheffler eftir sigurinn.

„Mér finnst líka eins og ég sé með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður. Það er góður staður til að vera á,“ sagði Scheffler.

„Mér líður eins og ég sé að þroskast sem manneskja út á golfvellinum og það er góður staður til að vera á,“ sagði Scheffler.

„Það er líka erfitt að rífast mikið yfir úrslitum síðustu vikna. Ég hef verið að spila gott golf. Ég reyni samt að hugsa ekki af mikið um fortíðina,“ sagði Scheffler. Scheffler hefur tekið fimm sinnum þátt í Mastersmótinu og unnið það tvisvar.

Scheffler varð sá fjórði yngsti til að vinna Mastersmótið tvisvar sinnum en hann er á eftir þeim Jack Nicklaus (25 ára, 81 daga), Tiger Woods (25 ára, 100 daga) og Seve Ballesteros (26 ára, 2 daga).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×