Innlent

Falskt eftirlit verra en ekkert - brimsalt bjúga í skólamötuneytinu

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.

„Neytendur hljóta að eiga skýlausan rétt á að vita hvaða fyrirtæki það eru sem hafa notað saltið í matvælaframleiðslu," segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar í samtali við fréttastofu, en hún birti blogg á vefsvæði sínu á Eyjunni. Þar lýsir hún yfir áhyggjum vegna lélegs eftirlits eftirlitsstofnanna og skrifar orðrétt: „Falskt eftirlit og falskt öryggi er nefnilega verra en ekki neitt."

Aðspurð hvort Hreyfingin muni beita sér fyrir málinu á þingi segist Margrét það til skoðunar þó engin ákvörðun hafi verið tekin um það. Alþingi kemur saman á morgun en Matvælastofnun heyrir undir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sem er Steingrímur J. Sigfússon. Eftirlit með Ölgerðinni heyrir undir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, en það var Matvælastofnun sem kom upp um mistökin.

Margrét segir málið vægast sagt sérkennilegt og bendir á að einstaklingar myndu ekki nota iðnaðarsalt til matreiðslu heima hjá sér. „Maður reynir að hafa hollan mat heima. En svo fara börnin manns í skólann þar sem þau borða í mötuneytinu. Og þar er stundum brimsalt bjúga í boði," segir Margrét og bætir við að það sé hrollvekjandi að hugsa til þess hversu lengi saltið hefur verið notað til matvælaframleiðslu.

„Við getum tekið prufu á saltinu núna og athugað magn þungmálma í því. En hvernig var þetta fyrir tíu árum síðan?" spyr Margrét að lokum. Hún segir Hreyfinguna líklega muna beita sér fyrir því að málið verði skoðað betur á Alþingi.


Tengdar fréttir

Segir viðbrögð Matvælastofnunar vegna iðnaðarsalts forkastanleg

"Matvælastofnun þarf að skoða sín mál betur,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sem gagnrýnir Matvælastofnun harðlega fyrir viðbrögð sín vegna frétta um að Ölgerðin hafi selt fyrirtækjum iðnaðarsalt til matvælaframleiðslu.

Ölgerðin upplýsti heilbrigðiseftirlitið um kaupendur

Ölgerðin hefur upplýst Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um kaupendur að iðnaðarsalti, sem fyrirtækið seldi til matvælaframleiðslu, þrjá mánuði aftur í tímann samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Ekki er vitað hvort neytendur verði upplýstir um það hverjir keyptu saltið.

Matvælastofnun harmar gagnrýni vegna iðnaðarsalts

Matvælastofnun (MAST) harmar harða gagnrýni Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á störf Matvælastofnunarinnar eftir að í ljós kom að Ölgerðin seldi iðnaðarsalt til fyrirtækja sem notuðu það svo í matvælaframleiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×