Fótbolti

ÍBV styrkir sig

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Sigurður Ragnar þjálfari ÍBV vinnur að því að styrkja liðið.
Sigurður Ragnar þjálfari ÍBV vinnur að því að styrkja liðið.
ÍBV hefur styrkt sig fyrir átökin í Pepsí deild karla í fótbolta í sumar með því að semja við 25 ára gamlan kantmann frá Trinidad & Tobago að nafni Dominic Adams.

Dominic Adams lék áður með Vermont Voltage sem leikur í þróunardeild í Bandaríkjunum, sem er ígildi fjórðu efstu deildar þar í landi.

Adams var til reynslu hjá ÍBV í vetur og lék æfingaleiki með liðinu og í kjölfar þess ákvað félagið að semja við hann.

Hann æfði á sínum yngri árum með félögum á borð við Wolves, Birmingham City og Watford en hann er snöggur og vinnusamur kantmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×