Viðskipti erlent

Fram­leiðslu Segway PT hætt

Atli Ísleifsson skrifar
Töffari á Segway PT.
Töffari á Segway PT. Getty

Segway hefur ákveðið að hætta framleiðslu samnefndra tveggja hjóla farartækja, Segway PT.

Fyrirtækið fullyrti á sínum tíma að Segway PT-hjólin myndu valda byltingu þegar kæmi að því hvernig fólk kæmist á milli staða, en þau nutu aðallega vinsælda meðal lögreglu og ferðaþjónustufyrirtækja í stærri borgum og náðu hjólin aldrei mikilli lýðhylli.

Segway hefur nú tilkynnt að framleiðslu Segway PT verði hætt um miðjan næsta mánuð, en tekjur fyrirtækisins af umræddri gerð nam einungis 1,5 prósent af heildartekjum Segway á síðasta ári. Verður 21 starfsmanni sagt upp í tengslum við ákvörðunina.

Dean Kamen stofnaði Segway árið 1999, en framtíðarsýn hans um ferðavenjur fólks raungerðist hins vegar aldrei. Upphaflegt verð Segway PT var um fimm þúsund Bandaríkjadalir sem fældi marga almenna neytendur frá.

Einnig reyndist erfitt fyrir margan manninn að ferðast um á hjólunum þar sem ökumaður þurfti að halla sér ákveðið mikið áfram til að hjólið færi af stað. Ef þyngdarpunkturinn breyttist mikið gæti ökumaður auðveldlega misst stjórn á fararskjótanum og bárust reglulega fréttir af Segway-slysum. Leiddi það til þess að margar borgir víða um heim bönnuðu notkun Segway-hjóla á götunum.

Segway hefur einbeitt sér að framleiðslu léttra hlaupahjóla síðustu ár.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×