Viðskipti erlent

Fær­eyingar fagna fiskflutningaþotu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Flugvélin fékk heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu við komuna til Færeyja í gær.
Flugvélin fékk heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu við komuna til Færeyja í gær. Jónis Albert Nielsen/jn.fo

Boeing 757-fraktflutningaþota færeyska flugfélagsins FarCargo fékk hátíðlegar móttökur á Voga-flugvelli þegar hún lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðdegis í gær. Helstu ráðamenn eyjanna voru meðal gesta í móttökuathöfn, þeirra á meðal Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkis- og atvinnumálaráðherra, og fékk þotan heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu þegar hún ók í hlað.

Flugvélin hefur fengið nafnið Eysturoy eftir næst stærstu eyju Færeyja. Hún fór þegar í gærkvöldi í sitt fyrsta vöruflug með ferskan lax til Bandaríkjanna með millilendingu á Íslandi. Eftir tveggja tíma viðdvöl í Keflavík hélt hún för sinni áfram vestur um haf um tíuleytið í gærkvöldi og lenti á Newark-flugvelli við New York laust fyrir miðnætti að staðartíma.

Flugvélin lenti klukkan 16.02 á Voga-flugvelli í Færeyjum.Jónis Albert Nielsen/jn.fo

FarCargo er dótturfélag laxeldisrisans Bakkafrosts, sem er langstærsta fyrirtæki Færeyja. Meginhlutverk þotunnar verður að flytja ferskan eldislax úr sjókvíum félagsins beint á markaði bæði austan hafs og vestan. Sérstaklega er horft til New York-svæðisins.

„Það tekur tólf daga að flytja lax til New York sjóleiðina frá Færeyjum og það er ekki ákjósanlegt fyrir gæðin í ferska laxinum að það taki svo langan tíma,“ segir Regin Jacobsen, forstjóri Bakkafrosts.

Regin Jacobsen er forstjóri og stærsti eigandi Bakkafrosts. Vöruhleðsludyr flugvélarinnar sjást opnar fyrir aftan.Jónis Albert Nielsen/jn.fo

„Það er mikil eftirspurn eftir ferskum laxi í Bandaríkjunum. Með þessari nýju flugvél tekur það níu klukkustundir að koma laxinum frá Færeyjum til New York,“ segir Regin.

Með flugvélinni stefnir Bakkafrost að því að flytja um 20 prósent af afurðum félagsins í flugi. 80 prósent verða áfram flutt með skipum.

Fyrst um sinn verður þotan rekin á flugrekstrarleyfi sænska fyrirtækisins West Atlantic og er hún með sænskt skrásetningarnúmer. FarCargo stefnir síðan að því að taka sjálft við flugrekstrinum. Þegar hafa átta flugmenn verið ráðnir til starfa hjá félaginu.

Flugvélin hefur hlotið heitið Eysturoy.Jónis Albert Nielsen/jn.fo

Flugvélin er af gerðinni Boeing 757-200. Hún var upphaflega smíðuð árið 2001 til farþegaflugs fyrir American Airlines. FarCargo lét breyta henni í fraktvél og getur hún þannig borið 35 tonn af farmi.

Forseti Íslands kynnti sér starfsemi Bakkafrosts í heimsókn til Færeyja fyrir sjö árum:

Boeing 757-þotur hafa einnig verið nýttar í flugi Icelandair Cargo með ferskan íslenskan fisk á erlenda markaði, sem fjallað var um í þættinum Um land allt árið 2014:


Tengdar fréttir

Kaupa flugvél til að flytja ferskan eldislax á markað

Færeyski fiskeldisrisinn Bakkafrost, í gegnum dótturfélag sitt FarCargo, mun í sumar hefja beint flug frá Færeyjum með ferskan eldislax á erlenda markaði. Til flugsins verður notuð fraktflugvél sem sérstaklega var keypt fyrir verkefnið.

Vill fiskflutninga með flugi frá Egilsstöðum

Forstjóri stærsta laxeldisfyrirtækis Austfjarða segir kjörin tækifæri til fiskflutninga með flugi beint frá Egilsstaðaflugvelli og hvetur til þess að nauðsynleg aðstaða til afgreiðslu fraktflugs verði byggð upp á flugvellinum.

Færeyingar eignast stóran hluta af laxeldi Skotlands

Færeyska fyrirtækið Bakkafrost hefur eignast 78 prósenta hlut í næst stærsta fiskeldisfyrirtæki Skotlands. Skoska fyrirtækið er með eldiskvíar á um 60 stöðum í Skotlandi og með yfir 600 starfsmenn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×