Viðskipti innlent

Fjár­mála­stjóri Play segir upp

Árni Sæberg skrifar
Ólafur Þór Jóhannesson var ráðinn forstöðumaður fjármálasviðs í október árið 2022.
Ólafur Þór Jóhannesson var ráðinn forstöðumaður fjármálasviðs í október árið 2022. Play

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, lætur af störfum að eigin ósk. Ólafur mun áfram sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hans tekur við.

Þetta segir í tilkynningu Play til Kauphallar.

„Ólafur hefur reynst góður liðsmaður á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félaginu. Hann var lykilmaður í gegnum mikilvæga fjármögnunarlotu félagsins á fyrsta ársfjórðungi og kveður nú félagið í góðri stöðu til framtíðar. Ég þakka Ólafi fyrir farsælt samstarf og óska honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Play.

Óskar félaginu hins besta

„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að vera hluti af stórskemmtilegri Play vegferð. Eftir farsæla fjármögnunarlotu tel ég réttan tímapunkt fyrir mig persónulega að stíga til hliðar og snúa mér að öðrum viðfangsefnum. Ég vil nota tækifærið og óska Play og starfsfólkinu alls hins besta og hlakka til að fylgjast með því vaxa og dafna í framtíðinni,“ er haft eftir Ólafi Þór.


Tengdar fréttir

Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi

Tekjur PLAY á fyrsta fjórðungi ársins voru 7,6 milljarðar króna. Það er aukning um 66 prósent, borið saman við sama fjórðung í fyrra, þegar tekjurnar voru 4,6 milljarðar króna. Rekstarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og skatta var þó neikvæð um 2,9 milljarða á árshlutanum.

Tveir stjórnar­­menn og for­­stjóri lögðu til milljarð

Tveir stjórnarmenn í Play og forstjóri félagsins lögðu félaginu til 986 milljónir króna í nýlokinni fjármögnunarlotu félagsins. Alls söfnuðust um 4,6 milljarðar króna og því lögðu þeir til 22 prósent aukins hlutafjár.

Segir Play með 45 prósent íslenskra farþega í Keflavík

Nýr forstjóri Play segir flugfélagið komið með 45 prósent íslenskra farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll. Hann segir vísbendingar um að ferðamannafjöldi til Íslands í ár verði svipaður og í fyrra, jafnvel meiri.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×