Viðskipti erlent

Tilraunaflug 737 MAX hófst í dag

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Boeing 737 MAX vél hefur sig til lofts.
Boeing 737 MAX vél hefur sig til lofts. Getty/Stephen Brashear/

Boeing 737 MAX flugvél hóf sig að loft að nýju í Bandaríkjunum í dag eftir að tilraunaflug Boeing og Flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum vegna MAX-vélanna hófst í dag.

Flugmaður á vegum FAA, flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum, var við stjórn er Boeing 737 MAX 7 flaug í um 90 mínútur eftir flugtak frá Boeing Field í grennd við Seattle í Bandaríkjunum í morgun að bandarískum tíma.

Framundan er þriggja daga ferli þar sem MAX-vélum verður flogið í tilraunaskyni undir vökulum augum starfsmanna Boeing og FAA. Í frétt Seattle Times segir að þar með sé risaskref tekið á þeirri vegferð Boeing að fá flugbanni á vélarnar aflétt.

Það hefur verið í gildi um allan heim frá því í mars á síðata ári eftir tvo mannskæð flugslys þar sem alls 346 létust um borð í MAX vélum sem meðal annars hafa verið rakin til hönnunar Boeing á MAX-vélunum.

Í frétt Seattle Times segir að tilraunaflugin nú beinist einkum að því að meta hvernig verkfræðingum og hugbúnaðarsérfræðingum hafi tekist að breyta sjálfvirku kerfi sem nefnist MCAS og er talið eiga stóran þátt í slysunum mannskæðu.

Hugbúnaðurinn sem um ræðir reiðir sig á gögn frá skynjurum sem mæla afstöðu flugvélarinnar. Hann á að koma í veg fyrir ofris ef skynjararnir benda til þess að flugvélin fljúgi og lágt eða bratt.

Takist vel til og ekkert óvænt gerist í millitíðinni segir í frétt Seattle Times að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum geti gefið grænt ljós á að MAX-vélarnar verði aftur teknar í notkun í haust. Flugbannið hefur haft áhrif á fjölmörg flugfélög víða um heim, þar á meðal Icelandair, sem hafði tekið nokkrar MAX-vélar í notkun er flugbannið var sett á, og lagt inn pantanir fyrir fleiri.

Markaðir ytra tóku prófununum á Boeing Field vel en hlutabréf Boeing hækkuðu um fjórtan prósent í viðskiptum dagsins á Wall Street.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×