Körfubolti

Michael Jordan mögulega bjargvættur NBA úrslitakeppninnar í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Jordan er eigandi Charlotte Hornets og eini svarti maðurinn sem á meirihluta í félagi í NBA-deildinni.
Michael Jordan er eigandi Charlotte Hornets og eini svarti maðurinn sem á meirihluta í félagi í NBA-deildinni. EPA-EFE/JULIEN DE ROSA

Michael Jordan var í hlutverki sáttasemjara í gær þegar NBA eigendur og NBA leikmenn ræddu í sitt hvoru lagi um næstu skref í þessari óvenjulegu stöðu sem er komin upp í miðri úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta. ESPN segir frá þessu.

Leikmenn NBA-deildarinnar eru búnir að fá sig fullsadda af því óréttlæti sem blökkumenn eru beittir af lögreglumönnum í Bandaríkjunum. Þeim finnst þeirra ákall til þessa hafi ekki haft nein áhrif og vildu því grípa til áhrifameiri aðgerða.

Michael Jordan er ekki bara goðsögn og geitin í augum NBA-leikmannanna sjálfra því hann er líka einn af eigendum NBA-deildarinnar. Hann hafði möguleika á að tala við aðila báðum megin borðsins og virtist hafa verið rödd skynseminnar á þessum mikilvæga degi í gær.

NBA deildin hefur nú frestað leikjum tvö kvöld í röð en svo virðist vera sem leikmenn hafa ákveðið að aflýsa ekki úrslitakeppninni.

Michael Jordan er kannski bjargvættur NBA úrslitakeppninnar í ár. Hann, sem eignandi Charlotte Hornets og eini svarti meirihlutaeigandi NBA-deildarinnar, leitaði til Chris Paul, formanns leikmannasamtakana. Jordan ræddi líka við Russell Westbrook og fékk að vita meira um hvað leikmennirnir væru að hugsa.

Jordan var síðan rödd skynseminnar á fundi eigendanna og talaði þar um að leikmenn þyrftu að fá að taka út sinn pirring og tjá sig um hvað þeir vildu áður en eigendurnir færu að bregðast við ástandinu. Adrian Wojnarowski á ESPN hefur síðan greint frá því að leikmenn kusu seinna að klára úrslitakeppnina.

Ekkert var spilað á miðvikudag eða fimmtudag eftir að leikmenn Milwaukee Bucks neituðu að spila leik sinn á miðvikudagskvöldið eftir að lögregla skaut blökkumanninn Jacob Blake sjö sinnum í bakið fyrir framan fjölskyldu sína í borg stutt frá Milwaukee.

Í kjölfarið tóku önnur lið í sama streng og það endaði með því að NBA-deildin aflýsti öllum leikjum. Öðrum íþróttaviðburðum í Bandaríkjunum var einnig frestað þar sem íþróttafólkið þar vildi líka sína samstöðu með leikmönnum NBA og réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum.

Atvikið með Jacob Blake var enn eitt dæmið um ofbeldi lögreglumanna gagnvart óvopnuðum svörtu fólki en ekki er langt síðan lögreglumaður drap George Floyd með því að vera með hné á hálsi hans í næstum því níu mínútur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×