Körfubolti

„Höfum verið að bíða eftir þessu“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir mætir fersk til leiks í kvöld eftir tíu daga pásu.
Sara Rún Hinriksdóttir mætir fersk til leiks í kvöld eftir tíu daga pásu. Vísir/Hulda Margrét

„Við erum ekki búnar að spila í einhverja tíu daga svo við höfum verið að bíða eftir þessu,“ segir Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Keflavíkur, um leik dagsins við Stjörnuna. Um er að ræða fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar kvenna.

„Við erum búnar að æfa vel og höldum okkar dampi. Náðum aðeins að hvíla og erum tilbúnar í þetta,“ segir Sara Rún um það hvernig síðustu tíu dagarnir hafa verið nýttir. Keflavík sópaði Fjölni úr leik í 8-liða úrslitunum og vann þriðja leik liðanna 17. apríl.

Síðan þá hefur liðið beðið þess að vita hver andstæðingurinn yrði í undanúrslitum en einvígi Hauka og Stjörnunnar fór alla leið í oddaleik hvar Stjarnan vann nauman sigur sem vannst ekki fyrr en á lokasekúndunum.

Stjarnan hafi engu að tapa

Sara segir mikið koma til ungs Stjörnuliðs sem hefur vakið mikla athygli í vetur.

„Það eru margar flottar stelpur þarna og mikil barátta í þeim. Þeirra hugarfar er kannski þannig að þær hafi engu að tapa, mætandi okkur. Stundum ganga hlutirnir betur upp með þannig hugarfari, og ég er mjög spennt að taka á móti þeim,“ segir Sara.

Margir gera ráð fyrir auðveldum sigri Keflavíkur í einvíginu en liðið hefur haft algjöra yfirburði í deildinni í vetur. Sara segir varhugavert að hugsa á þann veg, Stjarnan sé sterkt lið sem muni bíta frá sér.

„Við erum mjög gott lið og hefur gengið rosalega vel, en í þessum leikjum, eins og þú sérð þar sem Stjarnan vinnur Hauka - það getur allt gerst í þessum leikjum. Við erum alveg á jörðinni og vitum að þær ætla ekkert að gefa okkur þessa leiki, þetta getur farið á marga vegu,“

Hún vonast þá eftir góðri mætingu á eftir og stemningin góð í Reykjanesbænum.

„Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Karlarnir líka komnir í undanúrslit og það er létt yfir bænum,“ segir Sara.

Fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Keflavíkur og Stjörnunnar hefst klukkan 16:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×