Lífið

Áströlsk Youtube-stjarna fer yfir kosti og galla að búa á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Amore er nokkuð sátt hér á landi.
Amore er nokkuð sátt hér á landi.

Ástralska YouTube-stjarnan Sorelle Amore ákvað fyrir ekki svo löngu að fjárfesta í draumahúsi sínu og það hér á Íslandi og sýndi hún frá eigninni og lífi sínu hér á landi í maí.

Amore bjó hér á landi fyrir fjórum árum og ætlaði síðan búa víðsvegar um heiminn. Hún bjó í Los Angeles á síðasta ári en ákvað að fjárfesta í draumhúsinu úti á landi hér á Íslandi undir lok síðasta árs.

Hún greinir reglulega frá lífu sínu á Íslandi og virðist njóta þess að vera búsett hér á landi og þá sérstaklega á tímum sem þessum. 

Í nýju myndbandi frá Amore fer hún yfir kosti og galla þess að búa hér á landi. Þar segir hún kostina einna helst vera ótrúleg náttúrufegurð, veðrið nefnir hún sem bæði kost og galla, hér eru enginn skordýr sem éta mann eða geta verið hættuleg og hún nýtir öll tækifæri til ganga um berfætt. Hún er mjög hrifin af því hversu fáir búa hér á landi og er mikið pláss fyrir alla. Heilt yfir er Amore himinlifandi hér á landi.

Gallarnir eru þeir að það skiptir engu máli hversu gott veður er úti, hún tekur alltaf með sér regnjakka og hlý föt út þar sem veðrið geti tekið breytingum mjög snögglega og í raun á þriggja sekúndna fresti eins og hún segir sjálf. Bensínverðið hér mun vera nokkuð hátt og ef hún ætlar sér að panta vörur erlendis frá eru tollarnir hér mjög háir. Hún segir að varla sé hægt að fá góða og ferska ávexti hér á landi.

Amore nefnir enn fleiri kosti og galla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×