Skoðun

Drusla

Ágústa Arna Sigurdórsdóttir skrifar

Mikið hefur verið rætt um mál ensku landsliðsmannanna sem brutu reglur um sóttkví er þeir fengu heimsókn frá tveimur íslenskum stúlkum upp á hótel til sín um liðna helgi. Ekki nóg með að þeir væru í keppnisferð með enska landsliðinu hér á landi heldur er annar leikmaðurinn í sambandi og á barn. Ég held að við séum öll sammála um að stúlkurnar tvær sýndu dómgreindarleysi þegar þær fóru á fund við leikmennina á sunnudagskvöldið. En hey, við höfum öll verið tvítug og gert ýmislegt sem við erum ekki stolt af. Auk þess voru leikmennirnir í sóttkví en ekki þær og brutu þeir því sóttvarnarreglur með því að bjóða stúlkunum í heimsókn. Glæpurinn er þeirra.

Stúlkurnar fóru sem sagt og hittu fótboltamennina en fram hefur komið að þær hafi ekki vitað að þeir væru í sóttkví. Ef sætur strákur byði mér í partý upp á hótelherbergi væri fyrsta spurningin líklega ekki: „ertu í sóttkví?“ heldur miklu frekar: „á hvaða hóteli ertu og á ég að koma með snakk?“ Ég hefði líklega ekki lagt saman tvo og tvo og fengið út að viðkomandi væri í sóttkví. Virkir í athugasemdum eru hins vegar svo fullkomnir að þeir hefðu brugðist hárrétt við í þessum aðstæðum sem og öðrum.

Umræðan um þetta mál síðustu daga hefur verið yfirgengileg. Dómharkan, sleggjudómarnir og skítkastið sem stúlkurnar hafa fengið yfir sig í athugasemdakerfum netmiðlana er viðkomandi til háborinnar skammar. Þær hafa verið kallaðar druslur og hórur. Auk þess að vera sakaðar um að stunda vændi. Og af hverju? Jú, þær frömdu víst þann stórkostlega glæp að hitta stráka á hóteli.

Þetta viðhorf er ekki eingöngu að finna í netheimum þó svo að niðurrifsstarfsemi nútímans fari að mestu fram þar. Samfélagið allt hefur lengi litið á það sem alvarlegan glæp að íslenskar konur eigi samneyti við menn af erlendu bergi brotnir. Sérstaklega ef erlendu mennirnir eru þekktir og hafa birst á síðum glans tímaritanna. Eða tilheyra erlendum her líkt og á tímum ástandsins. Ef slíkt spyrst út fá konur á sig hinn alræmda stimpil:

Drusla.

Hins vegar gleymist að það þarf tvo til þegar kynlíf er stundað og sleppa strákarnir merkilega létt við drusluumræðuna. Og hinn óþolandi druslustimpil. Strákarnir eru hetjur ef þeir eru með mörgum konum en stelpurnar druslur ef þær leika sama leik.

Þetta stef ómar nú sem aldrei fyrr í athugasemdakerfum netmiðlana. Þar eru stúlkurnar sem hittu ensku landsliðsmennina kallaðar öllum illum nöfnum. Þeir sem eru hvað háværastir í þeirri umræðu er fullorðið fólk sem tjáir sig um tvær ungar stúlkur, sem það þekkir ekki neitt, á þann hátt að öllu venjulegu fólki ofbýður. Fullorðið fólk sem hlýtur að vera svo fullkomið að það hefur aldrei gert neitt án þess að hugsa eða var heimskulegt þegar á hólminn var komið.

Orðin sem hafa verið notuð um stúlkurnar tvær segir meira um innræti virkra í athugasemdum en nokkuð annað.

Höfundur er félagsfræðingur og hefur starfað við blaðamennsku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×