Sport

Dag­skráin í dag: Stór­leikurinn á Laugar­dals­velli, Man. United í deildar­bikarnum og Stúkan

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elín Metta Jensen fagnar marki. Elín Metta verður í eldlínuni ásamt íslenska landsliðinu í kvöld.
Elín Metta Jensen fagnar marki. Elín Metta verður í eldlínuni ásamt íslenska landsliðinu í kvöld. vísir/vilhelm

Fimm beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports í kvöld. Þrjár þeirra frá Íslandi en tvær þeirra eru erlendis frá.

Klukkan 17.30 hefst upphitun fyrir stórleik Íslands og Svíþjóðar í undankeppni EM 2021. Liðin hafa til þessa unnið alla sína leiki og um algjöran toppslag að ræða.

Helena Ólafsdóttir og spekingar hennar munu hita upp fyrir leikinn en leikurinn sjálfur hefst svo klukkan 18.00 á Laugardalsvelli þar sem mikið er undir.

Klukkan 19.00 fer fram leikur Slavia Prag og Midtjylland í forkeppni Meistaradeildarinnar en Mikael Anderson er á mála hjá Midtjylland.

Manchester United fer á útivöll í enska deildarbikarnum en liðið mætir Luton Town. Flautað til leiks klukkan 19.15 en Luton leikur í Championship-deildinni.

Síðast en ekki síst er Pepsi Max Stúkan á dagskrá í kvöld. Guðmundur Benediktsson og spekingar hans gera upp fjöruga umferð en Stúkan hefst klukkan 21.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×