Viðskipti innlent

Eimskip staðfestir kæru en hafnar ásökunum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vilhelm Már Þorsteinsson er forstjóri Eimskips.
Vilhelm Már Þorsteinsson er forstjóri Eimskips. Eimskip

Umhverfisstofnun hefur kært Eimskip til embætti Héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Félagið hafnar ásökunum um að hafa brotið lög um úrgangsmál við sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Eimskip birtir á vef Kauphallarinnar í dag, en fjallað var um söluna á skipunum og niðurrifi þeirra í Indlandi í þættinum Kveik á RÚV í gær. 

Í yfirlýsingu Eimskips ítrekar félagið fyrri yfirlýsingu um að það hafi ekki átt þátt í að taka þá ákvörðun hvernig skipin yrðu endurunninn, eftir að Eimskip seldi skipin tvö.

Þá kemur einnig fram að Eimskip hafi komist að því í dag að Umhverfisstofnun hafi í vikunni kært félagið til héraðssaksóknara sem lögaðila vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.

Í þættinum hélt forsvarmaður Shipbreaking Foundation, samtaka sem berjast fyrir því að tryggt sé að skipum sé fargað á öruggan og umhverfisvænan hátt, því fram að Eimskip hafi brotið evrópska úrgangslöggjöf þegar skipin voru seld, til fyrirtækis að nafni GMS.

Umhverfisstofnun og héraðssaksóknari höfðu áður lítið tjá sig um málið við fréttastofu þegar upplýsinga var óskað í dag og í gær, annað en að Umhverfisstofnun væri að skoða ábendinu um málið og að héraðssaksóknari staðfesti að erindi hefði borist frá Umhverfisstofnun um málið.

Í yfirlýsingu Eimskips segir félagið að Umhverfisstofnun hafi ekki aflað sér gagna frá félaginu, áður en það var kært.

„Eimskip hafnar þessum ásökunum enda fylgdi félagið í einu og öllu lögum og reglum í þessu söluferli.“

Yfirlýsingin í heild sinni

Í umfjöllun Kveiks þann 24. september var greint frá afdrifum tveggja skipa, Goðafoss og Laxfoss, sem áður voru í eigu Eimskips.

Eimskip hefur verið með ný skip í smíðum frá árinu 2017 til að leysa af hólmi skipin Goðafoss og Laxfoss og hafði þar af leiðandi í töluverðan tíma reynt að selja þau í gegnum alþjóðlega skipamiðlara. Í lok árs 2019 voru skipin loks seld og tók nýr eigandi við rekstri þeirra í upphafi þessa árs. Samhliða sölunni gerði Eimskip samning um að leigja þau meðan beðið var eftir afhendingu nýrra skipa. Sökum óvæntra og óhagstæðra markaðsaðstæðna skilaði Eimskip skipunum úr leigu til eiganda á vormánuðum, fyrr en upphaflega var gert ráð fyrir. Í kjölfarið tók eigandi skipanna ákvörðun um að selja skipin í endurvinnslu á Indlandi og kom Eimskip hvergi nálægt þeirri ákvörðun né með hvaða hætti skipin tvö voru endurunnin.

Eimskip hefur aflað upplýsinga frá Umhverfisstofnun sem hefur nú upplýst félagið að stofnunin hafi í vikunni kært félagið til embættis héraðssaksóknara sem lögaðila vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Eimskip hafði engar upplýsingar um þá kæru fyrr en eftir samtal við Umhverfisstofnun fyrr í dag og stofnunin aflaði engra gagna frá Eimskip vegna málsins.

Eimskip hafnar þessum ásökunum enda fylgdi félagið í einu og öllu lögum og reglum í þessu söluferli.


Tengdar fréttir

Eimskip staðfestir kæru en hafnar ásökunum

Umhverfisstofnun hefur kært Eimskip til embætti Héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Félagið hafnar ásökunum um að hafa brotið lög við sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi

Sleginn yfir því hvernig skipum er fargað

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segist vera sleginn vegna þess sem fram kom í þætti Kveiks í gær þar sem fjallað var um sölu og niðurrif tveggja skipa Eimskips á Indlandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×