Rafíþróttir

Einn efni­legasti mark­vörður Ís­lands lýsir einnig úr­vals­deildinni í eFót­bolta

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Cecilíu Rán er margt til lista lagt.
Cecilíu Rán er margt til lista lagt. Vísir/Bára

Cecilíu Rán Rúnarsdóttur er margt til lista lagt. Þessi ungi og magnaði markvörður hefur varið mark Fylkis í Pepsi Max deild kvenna í sumar og þá er hún hluti af íslenska A-landsliði kvenna þrátt fyrir ungan aldur. 

Cecilía Rán er fædd árið 2003 hefur leikið 54 leiki í deild og bikar fyrir Fylki og þar áður sameiginlegt lið Aftureldingar og Fram. Þá á hún að baki einn A-landsleik sem og fjölda yngri landsleikja. Fótboltaáhugi Cecilíu Ránar nær reyndar út fyrir knattspyrnuvöllinn sjálfan en hún lýsir einnig svokölluðum eFótbolta sem sýndur er á Stöð 2 Sport og hér á Vísi.

KSÍ í samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands hafa stofnað úrvalsdeildina í eFótbolta. Keppt verður í tölvuleiknum FIFA sem er vinsælasti íþróttaleikur í heimi. Leikmenn deildarinnar spila allir fyrir íþróttalið og er eitt af markmiðum deildarinnar að kynna rafíþróttir fyrir almenning og vera með deild sem iðkendur vilja stefna á að spila í.

„Þetta byrjaði allt þegar ég var beðin um að koma og leika í kynningarmyndbandi um eFótbolta og FIFA-tölvuleikinn í gegnum lið mitt Fylki. Eftir það var ég beðin um að taka þátt í því spennandi verkefni að lýsa nokkrum leikjum í eFótbolta sem væru sýndir í sjónvarpinu,“ sagði Cecilía um þennan áhugaverða útúrdúr frá hefðbundum fótbolta.

Hér má sjá Cecilíu útskýra FIFA-tölvuleikinn á sléttum 30 sekúndum.

„Svo spilum við stelpurnar stundum FIFA, þetta er ótrúlega skemmtilegur leikur og í raun eini tölvuleikurinn sem ég spila þannig það frábært að fá að vera hluti af þessu. Sérstaklega þar sem eFótbolti fer vaxandi með hverju árinu.“

„Þetta líkist alvöru fótbolta að einhverju leyti, það er hægt að stilla varnar- eða sóknarsinnuðu kerfi, breyta áherslum liðsins og leikmanna. Svo fer það eftir spilaranum sjálfum hvernig hann vill spila, hvort hann vilji spila þetta eins og alvöru leik eða til dæmis bara reyna sóla upp allan völlinn og skora með markverðinum, sem er reyndar geggjað.“

Þetta nýja starf Cecilíu mun þó ekki bitna á Fylkisliðinu.

„Það gengur mjög vel. Þeir sem halda utan um þetta eru mjög skilningsríkir ef ég forfallast vegna æfinga eða leikja,“ segir Cecilía sem hefur staðið í ströngu með Fylkisliðinu í sumar. Liðið á fjóra leiki eftir í Pepsi Max deildinni og verða þeir leiknir á sléttum tveimur vikum, frá 3. til 17. október.

„Ég veit það einfaldlega ekki en í Fylki er það klárlega Bryndís Arna Níeldóttir sem myndi rúlla þessu upp,“ sagði Cecilía aðspurð hvort einhver í landsliðinu gæti spilað í úrvalsdeildinni í FIFA.

Að lokum var Cecilía spurð út í sitt uppáhalds lið í FIFA og þar má segja að hún sé að svíkja lit.

„Uppáhaldsliðið mitt er Manchester United en þegar kemur að FIFA verð ég að segja að Bayern München sé uppáhaldsliðið mitt. Það eru svo margir hágæðaleikmenn þar sem vinna leikina einfaldlega á einstaklingsgæðum svo ég verð að segja Bayern.“


Tengdar fréttir

KSÍ fer af stað með efótbolta úrvalsdeild

KSÍ í samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands hafa stofnað Úrvalsdeildina í efótbolta. Keppt verður í tölvuleiknum FIFA sem er vinsælasti íþróttaleikur í heimi. Leikmenn deildarinnar spila allir fyrir íþróttalið og er eitt af markmiðum deildarinnar að kynna rafíþróttir fyrir almenning og vera með deild sem iðkendur vilja stefna á að spila í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×