Lífið

Kappræðurnar sagðar skammarlegar fyrir bandarískt lýðræði

Samúel Karl Ólason skrifar
Ritstjóri Politico segir kappræðurnar hafa verið svo skömmustulegar að þær hafi smánað Bandaríkin.
Ritstjóri Politico segir kappræðurnar hafa verið svo skömmustulegar að þær hafi smánað Bandaríkin. AP/Julio Cortez

Stjórnmálaskýrendur vestanhafs eru margir hverjir sannfærðir um að að fyrstu kappræður Donald Trump og Joe Biden hafi ekki verið álitlegar. Í rauninni hafi þær verið skammarlegar fyrir Bandaríkin og bandarískt lýðræði. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum, óreiðu og deilum og var farið heldur frjálslega með sannleikann.

Ritstjóri Politico segir kappræðurnar hafa verið svo skömmustulegar að þær hafi smánað Bandaríkin. Hámarki skammarinnar hafi verið náð og sagði hann að kappræðurnar yrðu myrkur blettur á Bandaríkjunum í áraraðir.

Trump kallaði Biden meðal annars heimskan og Biden kallaði forsetann trúð og rasista, svo eitthvað sé nefnt.

Jake Tapper, fréttamaður CNN, sagði kvöldið hafa verið smánarlegt og þar hafi að mestu verið Trump um að kenna.

Chris Cillizza, annar starfsmaður CNN, segir engan hafa unnið kappræðurnar. Kjósendur hafi ekkert lært um fyrir hvað frambjóðendurnir standa og hvaða málefnum þeir aðhyllast.

„Þetta voru, án efa, verstu kappræður sem ég hef orðið vitni að í tvo áratugi í þessu starfi,“ skrifaði Cillizza.

Hann vísaði sömuleiðis til Trump og sagði hann hafa hagað sér dónalega í kappræðunum og virt reglur kvöldsins að vettugi.

Blaðamaður Atlantic segir nóttina hafa verið „viðbjóðslega“ fyrir lýðræðið. Donald Trump hafi valdið því og Chris Wallace, stjórnandi kappræðanna, hafi leyft honum það.

Howard Kurtz, frá Fox News, segir kappræðurnar hafa verið lítið annað en áflog og öskurkeppni. Líklegast hafi kappræðurnar engu breytt fyrir kjósendur, nema kannski þá sem hafi metið frambjóðendur eftir kurteisi þeirra.

Greinandi BBC segir að „Twitter-Trump“ hafi mætt á sviðið í Cleveland. Það hafi ekki verið fallegt og vísar hann til eþss að kannanir sýni að meirihluti Bandaríkjamanna þyki Trump ekki haga sér vel á Twitter. Það sé meðal ástæðna fyrir því að forsetinn komi ekki vel út úr kappræðunum.

Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, sló á svipaða strengi og segist ótta að raunverulegur tapari næturinnar hafi verið ímynd bandarísks lýðræðis í heiminum.

Ljóst er að minnst einn hópur telur sig hafa unnið mikinn sigur í nótt. Það er fjar-hægri öfgahópurinn Proud Boys. Hópurinn hefur verið skilgreindur sem öfgasamtök og hafa yfirvöld bendlað þá margsinnis við ofbeldi í tengslum við mótmæli í Bandaríkjunum á undanförnum misserum.

Trump virtist ekki vilja fordæma hópinn, og aðra þjóðernissinna, og í samtölum sín á milli lýstu meðlimir Proud Boys strax yfir miklum sigri. Seinna ræddu þeir um að nýliðum hefði fjölgað í kjölfar kappræðanna, samkvæmt frétt New York Times.

Þáttastjórnendur spjallþátta Bandaríkjanna gerðu stólpagrín að kappræðunum í nótt. Þeir voru allir á því að heilt yfir hafi þær verið hræðilegar.


Tengdar fréttir

„Snjóflóð“ lyga frá forsetanum

Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér.

Framíköll, óreiða og deilur einkenndu kappræðurnar

Fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í Cleveland í nótt. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum og deilum.

Fyrstu kappræður Trumps og Bidens

Í nótt fara fram fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×