Lífið

Fé­lag Rikka Daða selur ein­býli sem áður var í eigu Rikka Daða

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Rikki og Edda eru búsett á Seltjarnarnesinu ásamt börnum sínum.
Rikki og Edda eru búsett á Seltjarnarnesinu ásamt börnum sínum. Edda

RD 11, félag í eigu Ríkharðs Daðasonar fjárfestis hefur sett einbýlishús við Sunnuveg á sölu. Félagið festi kaup á eigninni í apríl í fyrra á 270 milljónir,  sem þá var í eigu Ríkharðs og eiginkonu hans, Eddu Hermannsdóttur samskiptastjóri Íslandsbanka. 

Um er að ræða 283 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum sem var byggt árið 1971. Samtals eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Ríkharð og Edda settu eignina fyrst á sölu í desember 2022.

Síðastliðið ár hefur húsið verið í útleigu og hafa hjónin ákveðið að nú sé komin tími til að selja eignina. Nánari upplýsingar má nálgast á fasteignavef Vísis.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun

Greint var frá því maí í fyrra að Edda og Ríkharð hafi fest kaup á glæsilegu einbýli við Bakkavör á Seltjarnarnesi. Umrætt hús var teiknað af Kjartani Sveinssyni árið 1990 og er búið ellefu herbergjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×