Lífið

Þakklát fyrir að tennurnar séu heilar

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Danshöfundurinn Chantelle Carey slasaðist í rafskútuslysi í miðbænum í vikunni.
Danshöfundurinn Chantelle Carey slasaðist í rafskútuslysi í miðbænum í vikunni. Aðsend mynd

„Þetta hefði getað farið miklu verr en þetta hefði líklega farið betur ef ég hefði verið með hjálm,“ segir Chantelle Carey danshöfundur í samtali við Vísi.

Chantelle birti færslu á Facebooksíðu sinni í gær þar sem hún segir frá rafskútuslysi sem hún varð fyrir í fyrradag. 

So.... yesterday was fun... After a great opening weekend of the show... off I go to collect my car from the theatre. I...

Posted by Chantelle Carey on Þriðjudagur, 29. september 2020

„Ég ætlaði að sækja bílinn minn í Þjóðleikhúsið og var á leiðinni frá Hlemmi á rafskútu þegar slysið gerist. Ég hef oft tekið rafskútu þessa leið svo að þetta var bara einhver óheppni í mér í þetta skiptið.“

Slysið segir Chantelle hafi atvikast þannig að þegar hún fór á rafskútunni yfir götu á Rauðarárstíg og upp á gangstétt þá hafi hjólið staðið á sér.

„Gangstéttin þarna er svolítið ójöfn svo að þegar ég ætlaði upp á hana af götunni þá stóð hjólið á sér með þeim afleiðingum að ég skall beint með andlitið á stéttina.“ 

Chantelle segist í kjölfarið strax hafa farið upp á sjúkrahús þar sem hugað var að henni eftir slysið.

Þetta hefði getað farið miklu verr en þetta hefði líklega farið betur fyrir mig ef ég hefði verið með hjálm. 

Chantelle segist prísa sig sæla að hafa ekki hlotið neinn skaða á tönnum sínum við höggið en hún marðist töluvert í andliti og fékk einnig vott af heilahristingi.

„Þetta var mjög þungt högg og ég er bara þakklát fyrir að tennurnar séu heilar. Það verður eitthvað í það að ég fari aftur á rafskútu, svo mikið er víst,“ segir Chantelle. 

Hún bætir því við að gangstéttir á þessu svæði séu margar hverjar ójafnar og að fólk þurfi að gæta fyllstu varúðar ef ferðast á þar um á rafskútum.

„Auðvitað var þetta óheppni hjá mér en ég held samt að gangstéttir á þessu svæði séu ekkert sérstaklega góðar fyrir svona faratæki. Ég mæli allavega með því að fólk fari varlega og noti hjálm. Hann hefði bjargað miklu í mínu tilviki.“


Tengdar fréttir

Rafskútuleigan Hopp í útrás til Spánar

Hlaupahjólaleigan Hopp opnaði í dag hlaupahjólaleigu á Spáni í samstarfi við spænska félagið GO2PLACE Sl. Um svokallað sérleyfi er að ræða en Hopp leitar nú að fleiri samstarfsaðilum sem hafa áhuga á samstarfi erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×