Lífið samstarf

Gæðavörur skipta máli fyrir góðan svefn

Svefn og heilsa
Það jafnast ekkert á við að vakna hress á morgnana eftir góðan nætursvefn.
Það jafnast ekkert á við að vakna hress á morgnana eftir góðan nætursvefn.

Svefn og heilsa er vefverslun vikunnar á Vísi.

„Það er svo mikilvægt að sofa vel og vakna hress á morgnana. Þar skiptir allur pakkinn máli, rúmið, góð dýna, sæng og gæða sængurfatnaður. Við erum með sérstaka tilboðsdaga þessa vikuna þar sem öll mjúkvara er á 25 % afslætti og 10 % afsláttur er af öllum öðrum vörum í vefverslun. Það er því um að gera að versla í þægindunum heima gegnum netið,“ segir Elísabet Traustadóttir, framkvæmdastjóri Svefns og heilsu.

Jólin eru á næsta leiti og margir farnir að huga að jólagjöfunum og tilvalið að nýta sér afsláttardagana. Elísabet segir mjúkvöru vinsæla í jólapakkann og í vefversluninni er að finna og úrval af fallegri gjafavöru.

„Vinsælustu vörurnar í vefversluninni hjá okkur eru mjúkvörur eins og sængur og koddar og þá eru sloppar og handklæði einnig mjög fallegar jólagjafir. Ilmvörurnar frá Durance eru einnig mjög vinsælar og með þeim má fríska upp á svefnherbergið. Við eigum til herbergjasprey og línsprey og sérstök ilmumslög til að setja inn skápa og losna við skápalykt. Koddaspreyið okkar er sérstaklega gott til að fríska upp á koddann,“ segir Elísabet.

Úrvalið í versluninni spannar einnig húsgögn og hægindastóla, sófa og borð. Viðmótið á síðunni er þægilegt og auðvelt að finna það sem leitað er að. Elísabet segir stærri hluti einnig keypta gegnum netið.

„Við erum einnig með húsgögn og fólk kaupir líka rúm gegnum vefverslunina. Við erum með gott vefspjall á síðunni þar sem við veitum ráðgjöf og svör við spurningum. Það er lítið mál að versla á netinu og ekkert mál að skipta vöru ef þarf. Við leggjum mikla áherslu að hjálpa og viljum gera alla glaða,“ segir Elísabet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×