Hlýja jólagjöfin fæst í Dún og fiður Dún og fiður 7. desember 2022 13:25 Anna Bára Ólafsdóttir segir dúnsængur og kodda afar fallega jólagjöf. Bjarki Logason Hlýrri og notalegri jólagjöf er vart hægt að finna en mjúka dúnsæng. Anna Bára Ólafsdóttir, eigandi verslunarinnar Dún og fiður segir dúnsæng og kodda geta enst í tugi ára með réttri meðhöndlun og viðhaldi. „
Meðallíftími alls dúns er 18 til 22 ár en með góðri meðhöndlun hef ég séð dúnsængur endast mun lengur. Það skiptir miklu máli hvernig hugsað er um dúnsængur og kodda,“ segir Anna Bára en verslunin hefur þjónustað Íslendinga frá árinu 1959 og framleitt dúnsængur, kodda og rúmfatnað. „Fyrirtækið er rótgróið, stofnað af afa mínum og ömmu og ég er því þriðji ættliðurinn sem rekur fyrirtækið. Við bjóðum enn upp á sömu þjónustu og hefur alla tíð verið gert. Við bæði hreinsum sængur og endurnýjum. Við framleiðum einnig sængur bæði í stöðluðum stærðum og eftir máli og notum þrjár tegundir dúns í hæsta gæðaflokki; Andadún og tvennskonar gæsadún sem kallast Svanadúnn og Snjógæsadúnn,“ útskýrir Anna Bára. En hvernig er best að hugsa um dúnsængina sína? „Fyrir sem besta endingu mælum við með því að fólk komi með sængur í hreinsun á þriggja til fimm ára fresti en koddana á eins til tveggja ára fresti. Ég mæli ekki með því að fólk liggi ofan á dúnsængum á daginn og það er ekki endilega gott að viðra þær úti nema það sé léttskýjað og þurrt, alls ekki ef rakt er í lofti og ekki heldur í sterku sólskini. Sumir hafa verið að frysta dúnsængur en það verður til þess að það kemst í þær raki sem er ekki gott. Langbest er að koma með þær reglulega í hreinsun til okkar og við tökum á móti öllum dúnsængum og hreinsum þær og endurnýjum verin eins og þarf, hvort sem þær eru framleiddar hjá okkur eða annarsstaðar,“ segir Anna Bára. „Ungbarnasængurnar okkar eru loftmiklar og fallegar og við mælum með því, ef fólk ætlar að eiga fleiri börn að það komi með hana í hreinsun áður en næsta barn fæðist. Það er líka hægt að nýta dúninn úr ungbarnasænginni í stærri barnasæng eftir því sem barnið stækkar.“ Hágæða rúmfatnaður Rúmfatnaðurinn frá Dún og fiður er í háum gæðaflokki og segir Anna kjörið að kaupa einnig rúmföt um leið og sæng. Það sé tilvalin jólagjöf. „Við látum sauma fyrir okkur sængurföt úr damaski og úr hör. Hörsængurfötin eru mjög vinsæl enda mjög gott að sofa við hann. Við notum steinþveginn hör sem er mýkri en annar. Damaskrúmfötin eru alltaf sígild og falleg og þá er egypska bómullin mjög vinsæl. Við erum alltaf að auka úrvalið hjá okkur í rúmfatnaði og bjóðum eingöngu háklassa vöru,“ segir Annar Bára. Nú stendur yfir jólatilboð á rúmfatnaði í Dún og fiður, allt að 30 % afsláttur.
Svefn Jól Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Fleiri fréttir The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira